Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

16. apríl 2013 MatvælaráðuneytiðSteingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra 2012-2013

Grein í Fréttablaðinu 16. apríl - "Aðgerðir í þágu nýsköpunar og nýfjárfestingar"

Aðgerðir í þágu nýsköpunar og nýfjárfestingar


Fjölbreyttar aðgerðir undanfarin ár til stuðnings nýfjárfestingar og nýsköpunar sýna að margt hefur áunnist í þeim málaflokkum. Hér að neðan hef ég tekið saman stuttan en langt í frá tæmandi lista yfir aðgerðir sem núverandi ríkisstjórn hefur ráðist í í þessum málaflokki. Og eftir stendur spurningin; Fyrst þessi ríkisstjórn gat áorkað þetta í þeirri þröngu stöðu sem hún var í eftir efnahagshrunið – af hverju komu fyrri ríkisstjórnir ekki meiru í verk þegar staða ríkissjóðs var allt önnur og betri? Við því eru til fá svör.

Tökum nokkur dæmi:

  1.  Lög um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi hafa breytt umgjörð um nýfjárfestingar í atvinnulífinu og þau munu nýtast fyrir fjölbreytileg minni og meðalstór ekki síður en stór fjárfestingaverkefni, jafnt innlendra sem erlendra aðila. Meðal samninga um fjárfestingarverkefni sem búið er að gera á grundvelli þessara laga má nefna  stækkun aflþynnuverksmiðju Becromal á Akureyri, stálendurvinnslu GMR á Grundartanga og gagnaver Verne á Ásbrú.
  2. Lög um skattaívilnanir eða beinar endurgreiðslur rannsóknar- og þróunarkostnaðar í sprotafyrirtækjum hafa sannað sig svo um munar. Nú fer í hönd þriðja árið og hefur umfangið vaxið jafnt og þétt. Reiknað er með að umtalsverðir fjármunir fari í skattaafslætti eða endurgreiðslur sem er beinn stuðningur við rannsókna- og þróunarstarf í sprota- eða nýsköpunarfyrirtækjum.
  3. Allir vinna átakið sem gengur út á 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts á vinnu við endurbætur á íbúðarhúsnæði og húsnæði í eigu sveitarfélaga hefur hleypt auknum þrótti í byggingariðnaðinn og auk heldur komið þessum viðskiptum betur upp á yfirborðið.
  4. Markaðsátökin Inspired by Iceland, sem hrundið var af stað í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli og Ísland allt árið sem gengur út á að lengja ferðamannatímabilið á Íslandi hafa sannað gildi sitt. Og galdurinn á bak við velgengni beggja verkefnanna er sá að hér tóku saman höndum stjórnvöld og fyrirtækin sjálf í greininni.
  5. Framkvæmdasjóður ferðamála var settur á stofn gagngert til að lyfta grettistaki í uppbyggingu aðstöðu og vernd náttúru við helstu ferðamannastaði á landinu en einnig til að fjölga vinsælum ferðamannastöðum. Á næstu þremur árum verða settar 500 milljónir á ári í þennan sjóð.
  6. Lög um jöfnun flutningskostnaðar fela í sér mikilvægan stuðning við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni.
  7. Sóknaráætlanir hafa verið gerðar fyrir hvern landshluta og ganga þær út á að meta styrkleika hvers svæðis og hvernig best verði staðið að atvinnuuppbyggingu. Heimamenn sjálfir forgangsraða verkefnum og verður umtalsverðum fjármunum varið í þessi verkefni á næsta ári.
  8. Fjárfestingaáætlun sem nýlega hefur verið kynnt markar alger tímamót og setur nýjar áherslur í nýsköpun og atvinnuþróun. Stærra skref hefur ekki verið stigið í þeim efnum um árabil.
  9. Mótuð hefur verið aðgerðaáætlun um eflingu verk- og tæknináms á framhaldsskóla- og háskólastigi.
  10. Frá stofnun Tækniþróunarsjóðs og Rannsóknarsjóðs hefur aldrei fyrr verið lögð jafnmikil áhersla á eflingu þeirra eins og nú enda gegna þeir lykilhlutverki í framþróun atvinnu- og efnahagslífsins.  Samkvæmt fjárfestingaráætlun er gert ráð fyrir miklu viðbótarfjármagni til þessara sjóða.
  11. Nýstofnsettur Verkefnasjóður fyrir skapandi greinar mun verða veigamikill stuðningur fyrir verkefni þar sem saman fer listrænn sköpunarkraftur og nýsköpun í atvinnulífinu og þar eru svo sannarlega mörg tækifæri.
  12. Grænn fjárfestingarsjóður hefur verður settur á laggirnar en tilgangur hans verður að efla stoðir Græns hagkerfis sem snýst um sókn í atvinnu- og efnahagsmálum þar sem umhverfisvænar lausnir leysa þær hefðbundnu af hólmi.

Sem sagt, heilmiklu hefur verið áorkað samhliða glímunni við beinar afleiðingar hrunsins á þessu kjörtímabili.

Steingrímur J. Sigfússon

Höfundur er atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra





Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum