Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

21. maí 2013 MatvælaráðuneytiðSteingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra 2012-2013

Grein í Fréttablaðinu 18. maí - „Ísland með fyrstu einkunn, -að utan!"

Ísland með fyrstu einkunn, -að utan!

Í vikunni bárust a.m.k  tvennar jákvæðar fréttir sem tengjast áherslum Íslands í velferðarmálum. Báðar fréttirnar sýna að viðbrögð okkar við hruninu hafi verið félagslega meðvituð og árangursrík á sviði velferðarmálanna. Þetta er raunar langt í frá í fyrsta sinn sem þetta er staðfest á síðustu misserum.

Jöfnuður eykst

Í fyrsta lagi gefur OECD Íslandi góða einkunn í nýrri úttekt um þróun jafnaðar eða ójafnaðar í aðildarríkum stofnunarinnar.  Jöfnuður er samkvæmt skýrslu OECD hvergi meiri en á Íslandi og hefur aukist umtalsvert undanfarin ár öfugt við mörg önnur lönd í efnahagserfiðleikum. Á mannamáli þýðir það að íslenskum stjórnvöldum, nánar tiltekið ríkisstjórn okkar Vinstri grænna og Samfylkingar, hefur tekist að jafna byrðunum þannig að kaupmáttur hinna tekjulægri hefur varist betur en annarra gegnum þrengingarnar. Jöfnuður er hér almennt meiri en áður, færri en ella eru útsettir fyrir fátækt og félagsleg vandamál hafa ekki aukist svo merkjanlegt sé þrátt fyrir þær efnahagslegu hamfarir sem landið hefur gengið í gegnum. Í velflestum kreppuhrjáðum löndum jókst ójöfnuður eftir hrun en það hefur ekki gerst á Íslandi. Ísland er því undantekning í þessu samhengi.

Velferðin varin

Í öðru lagi sendi breski fræðimaðurinn David Stuckler frá Cambridge háskólanum frá sér bók sem fjallar um áhrif kreppunnar á lýðheilsuástand fólks í Evrópu og Bandaríkjunum. Ítarlega hefur verið fjallað um útgáfu bókarinnar og rannsóknir Stuckler í erlendum fjölmiðlum síðustu daga. Niðurstaða Stuckler er að lýðheilsu í mörgum löndum í Evrópu og einnig í Bandaríkjunum hefur hrakað hjá þeim sem lægstar hafa tekjurnar. Athyglisvert er að Stuckler tiltekur Ísland sérstaklega sem dæmi um land þar sem vel hefur tekist til við að viðhalda góðu lýðheilsuástandi. Á Íslandi hefur aðgengi að heilbrigðisstofnunum haldist óbreytt og þjónustustigið hefur verið varið eins vel kostur var. Þessu er öfugt farið víðast hvar samkvæmt rannsóknum Stuckler. Þau lönd sem koma einna best út úr rannsóknum Stuckler eru Norðurlöndin og ætti það ekki að koma neinum á óvart.  Lýðheilsu hefur á hinn boginn víða hrakað, sérstaklega nefnir Stuckler Grikkland í því sambandi en einnig hefur ástandið versnað í Bandaríkjunum og Bretlandi á allra síðustu árum. 

Réttlát dreifing gæða og/eða byrða stærsta velferðamálið

Þessir vitnisburðir að utan hljóta að gleðja mörg samtök og hópa sem bera þessi gildi fyrir brjósti, t.d. þau eða þá sem hafa nú um sinn beðið í ofvæni eftir annarri ríkisstjórn eins og forseta ASÍ. Hægri og miðjuöflin mega heldur betur standa sig vel ef þau eiga að ná því að auka hér enn jöfnuð eða gera betur hvað varðar félagslega réttláta dreifingu byrðanna. Staðreyndir, vandaðar rannsóknir og óumdeildar mælingar sem eru samanburðarhæfar milli landa tala sínu máli hvað sem allri stjórnmálaþrætu líður. Íslendingar myndu gera rétt í því að taka a.m.k. í einhverjum mæli mark á slíku ekki síður en heimatilbúnum veruleika loforðamanna og hagsmunaafla hins gamla Íslands. Hvers konar samfélag viljum við hér í landinu? Jöfnuð og jafnrétti eða græðgi sérhagsmunahópanna? Þar er efinn, ekki síst nú eftir síðustu alþingiskosningar.

Steingrímur J. Sigfússon

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum