Hoppa yfir valmynd

Framboð - leiðbeiningar

Framboð skulu tilkynnt til yfirkjörstjórnar þeirrar sem í hlut á eigi síðar en kl. 12 á hádegi 10. september 2021 en yfirkjörstjórn skal auglýsa hvar hún tekur við framboðslistum.

Tilkynningin getur verið undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift.

Þegar auglýsing yfirkjörstjórnar hefur verið birt verður unnt að nálgast hana hér.

Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu eða starfsheiti og heimili til þess að enginn vafi geti leikið á því hverjir eru í kjöri.

Á vef landskjörstjórnar eru almennar leiðbeiningar um framsetningu framboðslista, tilkynningu um framboð o.fl. Á vef landskjörstjórnar eru almennar leiðbeiningar um framsetningu framboðslista, tilkynningu um framboð o.fl., sjá: https://www.landskjor.is/leidbeiningar/.

Á framboðslista skulu vera nöfn tvöfalt fleiri frambjóðenda en nemur þingsætum í kjördæminu, hvorki fleiri né færri. Þingsæti eru 63 og skiptast þannig milli kjördæma:

Norðvesturkjördæmi
8 þingsæti
Norðausturkjördæmi
10 þingsæti
Suðurkjördæmi
10 þingsæti
Suðvesturkjördæmi
13 þingsæti
Reykjavíkurkjördæmi suður
11 þingsæti
Reykjavíkurkjördæmi norður
11 þingsæti

 

Hverjum framboðslista skal fylgja yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Yfirlýsing frambjóðenda um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á framboðslista getur verið undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift.

Framboðslista skal og fylgja meðmælendalistar þar sem kjósendur í hlutaðeigandi kjördæmi lýsa yfir stuðning við listann og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er boðinn fram.

Sjá einnig...

Síðast uppfært: 20.6.2022
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum