Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2014 Fundargerðir stjórnarskrárnefndar 2013-2017

7. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Umhverfisvernd
  3. Embætti forseta Íslands
  4. Kosningar og kjördæmaskipan
  5. Þing og ríkisstjórn
  6. Önnur mál

Fundargerð

7. fundur – haldinn föstudaginn 28. mars 2014, kl. 9.15, í Þjóðmenningarhúsinu, stofu Jóns Sigurðssonar, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Sigurður Líndal, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Skúli Magnússon, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir. Birgir Ármannsson og Róbert Marshall höfðu boðað forföll.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

Formaður setti fundinn og stýrði honum.

1.       Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 6. fundar, föstudaginn 14. mars 2014, var send nefndarmönnum með tölvupósti 17. mars. Engar athugasemdir komu fram og telst fundargerðin samþykkt.

2.       Minnisblöð síðustu funda

a) Auðlindir

Á 6. fundi nefndarinnar var samþykkt að veita frest til skriflegra athugasemda við fyrirliggjandi drög að minnisblaði um auðlindir (drög nr. 2, dags. 8.3.2014). Athugasemdir bárust frá KJ og SM og voru sendar öðrum nefndarmönnum. Uppfært minnisblað á grundvelli þeirra athugasemda (drög nr. 3, dags. 27.3.2014) var sent nefndarmönnum 27. mars. Þar var þó gerður sá fyrirvari að eftir væri að vinna úr tiltekinni athugasemd KJ.

Samþykkt að fela stm. að vinna tillögu að frekari úrvinnslu á athugasemd KJ.

b) Umhverfisvernd

Minnisblað (drög nr. 1, dags. 26.2.2014) var sent nefndarmönnum 27. febrúar. Efni þess kom fyrst til umfjöllunar á 6. fundi nefndarinnar, 14. mars. Uppfært minnisblað á grundvelli þeirra umræðna (drög nr. 2, dags. 27.3.2014) var sent nefndarmönnum 27. mars.

Samþykkt að frestur til skriflegra athugasemda verði til og með mánudeginum 7. apríl.

3.       Embætti forseta Íslands

Minnisblað (drög nr. 1, dags. 27.3.2014) var sent nefndarmönnum 27. mars.

Orðið var gefið laust og rætt um stjórnarskrárákvæði varðandi embætti forseta Íslands, með áherslu á eftirfarandi atriði:

  • Stöðumat (fræðileg/pólitísk greining því hvort breytinga(r) er þörf).
  • Sér nefndin fyrir sér miklar breytingar eða litlar? Breytingar í einu lagi eða áföngum? Þarf sérstakt ferli?
  • Framtíðarsýn og markmið við endurskoðun.
  • Helstu leiðir/áherslur að mati nefndarinnar og áhrif þeirra.

Ákveðið að frekari vinnsla á minnisblaðinu fari ekki fram fyrr en í kjölfar umræðna um málið á næsta fundi.

4.      Önnur mál

Næstu umfjöllunarefni nefndarinnar verða kosningar og kjördæmaskipan og þar næst þing og ríkisstjórn (tiltekin atriði), sbr. minnisblað frá 3. fundi, dags. 27. janúar 2014. 

Forsætisráðuneyti hefur opnað nýjan og endurbættan vef á slóðinni stjornarskra.is. Þar er m.a. að finna upplýsingar um verkefni og störf nefndarinnar, þar á meðal samþykktar fundargerðir. Jafnframt hefur vefurinn að geyma heildstætt yfirlit yfir fyrri vinnu við stjórnarskrármál, þær breytingar sem gerðar hafa verið  á einstökum ákvæðum, dóma sem gengið hafa og fleira sem komið getur að góðu gagni fyrir nefndarmenn.

Næsti fundur verður haldinn föstudaginn 11. apríl, á reglulegum fundartíma og fundarstað nefndarinnar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.00.

SG skrifaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum