Hoppa yfir valmynd
13. október 2015 Fundargerðir stjórnarskrárnefndar 2013-2017

39. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Vinna við fyrirliggjandi textadrög
  3. Önnur mál

Fundargerð

39. fundur – haldinn þriðjudaginn 13. október 2015, kl. 13.00, í Safnahúsinu, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Einar Hugi Bjarnason, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Róbert Marshall, sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar, og Valgerður Bjarnadóttir. Valgerður Gunnarsdóttir hafði boðað forföll.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 37. fundar, sem haldinn var mánudaginn 28. september 2015, var samþykkt með breytingum. Fundargerð 38. Fundar var samþykkt án athugasemda.

2. Vinna við fyrirliggjandi textadrög

Farið var yfir fyrirliggjandi textadrög og rætt um þau atriði sem enn er skoðanamunur um. Formaður mun stýra úrvinnslu á þeim athugasemdum sem fram komu, eftir atvikum í samvinnu við sérfræðingahópa, og leita málamiðlunar.

3. Önnur mál

Ekkert var rætt undir þessum lið.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.00.

SG ritaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum