Kallað eftir tölfræðigögnum um raunverulega stöðu stúlkna
Kynningarmyndband frá Plan International Milljónir stúlkna eru "ósýnilegar" vegna þess að skortur er
á tölfræðilegum upplýsingum um þær, segja samtökin Plan International
og eiga við að hvorki stjórnvöld né aðrir sem koma að stefnumörkun í
málaflokkum sem varðar stúlkur viti nákvæmlega um stöðu þeirra. Samtökin
gáfu í vikunni út skýrsluna "Counting the Invisible" (Teljum þær
ósýnilegu) til að vekja athygi á mikilvægi tölfræðilegra gagna um
stúlkur í baráttunni fyrir réttlátari heimi og jafnrétti fyrir alla.
Í skýrslunni er rýnt í stöðu
stúlkna og dregið fram í dagsljósið hvar skortur á tölfræðigögnum er
áberandi. Fram kemur að gögn skorti um það hversu margar stelpur
hrökklast úr námi vegna snemmbúinna giftinga, hversu margar stelpur
eignist börn fyrir 15 ára aldur, hversu marga klukkutíma á dag þær þurfi
að vinna, hvers konar vinna það er og hvort þær fái greitt fyrir þær
vinnustundir.
Í formála skýrslunnar segir að miklar framfarir hafi almennt orðið í
lífi stúlkna og kvenna á síðustu áratugum. Dregið hafi úr dauðsföllum af
barnsförum, fleiri stelpur séu skráðar í grunnskóla, barnahjónaböndum
fækki og kvenkyns þingmönnum fjölgi. "Og, dag hvern, bætast við nýjar
raddir sem tala fyrir því ákveðið að ekki einungis verði tryggð staða
kvenna og stúlkna í þróunaráætlunum heldur verði þær leiddar til
öndvegis," segir skýrsluhöfundur og bætir við að leiðin hafi alls ekki
verið greið. Enn eigi jafnrétti langt í land og valdefling kvenna og
stúlkna sé enn fyrirheit sem ekki hafi verið staðið við í mörgum
heimshlutum.
"Árið 2014 voru rúmlega 100
milljónir ungra kvenna í lágtekju- og millitekjuríkjum ólæsar. Stúlkur
utan skóla eru líklegri en strákar að vera meinað um menntun. Konur
hvarvetna í heiminum verja fleiri klukkustundum en karlar í ólaunuð
störf við ummönnun eða heimilsverk eins og eldamennsku eða þrifnað sem
leiðir til þess að þær fá minni tíma til náms, hvíldar og til að hugsa
um sig sjálfar. Þá segja tölfræðigögn að hvarvetna í heiminum hafi konur
lægri laun en karlar."
Málstofa á næstunni: The transformative potential of girls' education (ODI)