Heimsmarkmiðin, flóttafólk og loftslagsbreytingar
"Það er sérstaklega ánægjulegt að fá Ban Ki-moon hingað til
lands á síðustu mánuðum hans í starfi aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna. Samþykkt Heimsmarkmiðanna um sjálfbæra þróun og framlag hans
til baráttunnar gegn loftslagsbreytingum bera glöggt merki um framsýni
hans og stjórnvisku. Þá hefur Ban alla tíð verið afar öflugur málsvari
jafnréttisbaráttunnar og beitt sér mjög í þeim efnum. Hann hefur verið
óþreytandi við að færa starfshætti Sameinuðu þjóðanna, þessarar
mikilvægustu alþjóðastofnunar heims, til skilvirkari og betri vegar. Það
verður ekki auðvelt að feta í fótspor Ban Ki-moon," segir Lilja
Alfreðsdóttir utanríkisráðherra.
Hún átti fund með Ban
Ki-moon um síðustu helgi þar sem ástandið í Sýrlandi og straumur
flóttamanna, jafnréttismál, Heimsmarkmiðin, loftslagsbreytingar og
málefni norðurslóða og hafsins voru meðal umræðuefna.
Lilja og Ban fögnuðu því að skilyrðum fyrir
alþjóðlegri fullgildingu Parísarsamningsins um loftslagsmál hefur nú
verið náð og gengur hann í gildi í næsta mánuði. Ísland var á meðal
fyrstu 30 ríkjanna sem fullgiltu samninginn og afhenti utanríkisráðherra
Ban Ki-moon fullgildingarskjal Íslands í höfuðstöðvum SÞ í síðasta
mánuði.
Fleiri konur, meiri friður
Á fundi sínum ræddu Lilja og Ban
Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun fram til 2030 sem aðildarríki SÞ settu
sér 2015 en aðalframkvæmdastjórinn hefur stutt mjög við gerð þeirra og
framkvæmd. Megináherslur Íslands í þróunarsamvinnu; jafnrétti, hafið,
endurnýjanleg orka og landgræðsla ríma vel við markmiðin og lagði Lilja
áherslu á að til þess að þau yrðu að veruleika væri jöfn aðkoma kvenna
og karla lykilatriði. Hún áréttaði einnig virðingu fyrir mannréttindum
og mikilvægi ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 1325 um konur, frið og öryggi
og sagðist vilja sjá fleiri konur koma að sáttaumleitunum og
friðaruppbyggingu á átakasvæðum. "Öll gögn sýna að friður er mun
líklegri til að komast á ef konur sitja við samningaborðið og mun
líklegra að friður haldist ef konur taka virkan þátt í
friðaruppbyggingu. Fleiri konur, meiri friður," segir Lilja.
Þau ræddu einnig mannréttindamál, þar á meðal
fullgildingu Íslands á samningi um réttindi fatlaðs fólks sem væri mikið
fagnaðarefni. Þau ræddu ýmis málefni SÞ, meðal annars umbætur á
starfsemi öryggisráðs SÞ. Ástandið í Sýrlandi og fyrir botni
Miðausturlanda var ennfremur til umræðu og greindi utanríkisráðherra frá
framlögum Íslands vegna flóttamannavandans, en fyrirséð er að Ísland
taki á móti rúmlega 100 flóttamönnum frá Sýrlandi á þessu ári. Þá ræddu
þau einnig stöðu mála á Kóreuskaganum.
Áhrif loftslagsbreytinga og norðurslóðir voru
megininntak ræðu Ban Ki-moon á Hringborði norðurslóða í Hörpu.
Aðalframkvæmdastjórinn sat einnig kynningarfund með fulltrúum Háskóla
Sameinuðu þjóðanna á sviði jarðhitanýtingar, sjávarútvegsmála,
landgræðslu og jafnréttismála. Þá flutti Ban ávarp á ráðstefnu um
arfleifð og áhrif leiðtogafundarins í Höfða, sem haldin var í Háskóla
Íslands.