Sögulegt samkomulag í loftslagsmálum í Rúanda
Sögulegt samkomulag náðist á
alþjóðlegum fundi í Rúanda á dögunum um að útrýma notkun efna í fjölda
kæliskápa og loftkælikerfa sem skaðleg eru andrúmsloftinu. Útrýma á
notkun vatnsflúorkolefna á næstu áratugum. Sérfræðingur hjá
Umhverfisstofnun sagði í frétt á Stöð 2 að mikilvægt skref hafi verið
stigið í baráttunni gegn skaðlegum loftslagsbreytingum á jörðinni.
Samkvæmt samkomulaginu verða ríki flokkuð í þrjá flokka varðandi
niðurskurð á notkun tækja sem nota vetnisflúorkolefni en það eru einkum
kæliskápar og loftkælikerfi.
Þróuð ríki í Evrópu og
Norður-Ameríku munu draga úr notkun hinna skaðlegu efna um 10 prósent
fyrir árið 2019 og um 85 prósent fyrir árið 2036.
Fulltrúar um tvö hundruð þjóðríkja sátu fundinn sem haldinn var í Kigali.
Sögulegt samkomulag í loftslagsmálum/ Vísir
Climate protection: new momentum, slow implementation, eftir Hans Dambowski/ D+C
Green transformation 'unstoppable' as countries agree to curb powerful greenhouse gases - UN / UNNewsCentre