Hoppa yfir valmynd
30.11. 2016

Afnám ofbeldis gegn konum og stúlkum - konur á flótta aldrei fleiri

Ljosgangaunwomen2016Ljósaganga UN Women var farin síðastliðinn föstudag á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi sem einnig markaði upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Yfirskrift Ljósagöngunnar í ár var - Konur á flótta. Samkvæmt upplýsingum frá UN Women eru 65 milljónir manna á flótta í heiminum núna og konur á flótta hafa aldrei verið fleiri. "Við þær hörmulegu aðstæður og neyð sem fólk býr við eru konur og stúlkur berskjaldaðri en nokkru sinni fyrir ofbeldi," segja fulltrúar UN Women.

Ofbeldi gegn konum eitt útbreiddasta mannréttindabrotið Ofbeldi gegn konum er eitt útbreiddasta mannréttindabrot í heiminum en ein af hverjum þremur konum hefur orðið fyrir ofbeldi á lífsleiðinni. Hvert einasta samfélag í heiminum er þjakað af kynbundnu ofbeldi - á meðan það viðgengst og refsileysi ríkir munu framfarir í jafnréttisbaráttunni ekki eiga sér stað. Kynbundið ofbeldi hefur víðtæk áhrif á samfélög í heilsufarslegu-, efnahagslegu- sem og félagslegu tilliti en þegar konur eru heilbrigðar eru samfélög heilbrigð.

Landsnefnd UN Women á Íslandi styrkir Styrktarsjóð Sameinuðu þjóðanna ( UN Trust Fund to End Violence against Women). Sjóðurinn hefur starfað undanfarin tuttugu ár um allan heim að upprætingu á ofbeldi gegn konum og stúlkum. Helstu áherslur sjóðsins eru að koma í veg fyrir ofbeldi gegn konum, tryggja þolendum viðeigandi aðstoð og stuðla að sterkari löggjöf og framfylgd laga um ofbeldi gegn konum.
Styrktarsjóðurinn hefur alla tíð lagt ríka áherslu á að styrkja grasrótarsamtök sem berjast fyrir bættri stöðu kvenna. Sjóðurinn styður starf frjálsra félagasamtaka og samstörf félagasamtaka og stjórnvalda víða um heim. Árlega berast sjóðnum yfir tvö þúsund umsóknir um styrki til verkefna en aðeins 25 verkefni hljóta styrk. Um þessar mundir er 33 virk verkefni starfrækt, segir á vef UN Women á Íslandi.

UN Women starfar í þágu kvenna um allan heim og styður m.a. við konur á flótta. UN Women dreifir t.d. sæmdarsettum til kvenna sem innihalda helstu nauðsynjar. UN Women á Íslandi hvetur alla til að senda sms-ið KONUR í 1900 (1.490 kr.) og veita konum á flótta frá Mosul vasaljós, dömubindi og sápu. 


Sameiginleg yfirlýsing á Alþjóðadegi gegn kynbundnu ofbeldi, 25. nóvember 2016/ Framkvæmdastjórn ESB I Kjarninn
Violence against Women and Girls and Climate Change/ UNESCO
Invest and mobilize to end violence against women/ UNWomen
Increase in Laws Protecting Women Against Violence/ MoIbrahim

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum