Hoppa yfir valmynd
14.12. 2016

UNICEF fagnar 70 ára baráttu í þágu barna heimsins

UNICEF-veitti-umfangsmikla-Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) fagnaði 70 ára afmæli á dögunum og þeim mikla árangri sem náðst hefur í þágu barna í heiminum síðastliðna áratugi. Sá árangur sést ef til vill best í þeirri staðreynd að helmingi færri börn láta lífið fyrir fimm ára aldur nú en fyrir 25 árum. Um leið ítreka samtökin ákall sitt um hjálp handa þeim milljónum barna sem eru í hættu vegna átaka, fátæktar og ójöfnuðar. 

"Sleitulaus vinna UNICEF á mörgum af erfiðustu og fátækustu stöðum heims á þátt í þeim gríðarlegu framförum sem orðið hafa fyrir börn vítt og breitt um veröldina síðastliðna áratugi," segir í frétt frá landsnefnd UNICEF á Íslandi. "Hundruð milljóna barna hafa brotist út úr fátækt og þeim börnum sem ekki ganga í skóla hefur fækkað um 40% síðan 1990."   

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, var komið á fót af Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna til að veita stríðshrjáðum börnum í Evrópu, Kína og Miðausturlöndum neyðarhjálp eftir seinni heimsstyrjöldina. Markmiðið var að ná til allra barna í neyð, óháð því hvaða afstöðu landið þeirra hefði haft í styrjöldinni. Samtökin voru fjármögnuð með frjálsum framlögum, stækkuðu fljótt og voru árið 1955 farin að hjálpa börnum í yfir 90 ríkjum.                  +

Í dag vinnur UNICEF í yfir 190 ríkjum - nærri öllum ríkjum heims, og eru langstærstu barnahjálparsamtök heims. Markmiðið er sem fyrr að ná til allra barna, enda eiga öll börn sömu réttindi, óháð því hvar þau fæðast og hvar þau búa.   

Heimur þar sem börn fá að blómstra 

 Frá því að UNICEF hóf starfsemi sína fyrir 70 árum hafa samtökin brugðist mörg þúsund sinnum við þegar neyðarástand hefur skapast, svo sem eftir náttúruhamfarir eða vegna stríðsátaka.
"Án alls þess hugrakka fólks sem gerir allt sem það getur til að ná til þeirra barna sem eru mest berskjölduð - og án stuðning frá heimsforeldrum, fyrirtækjum, stjórnvöldum og öllum þeim sem styðja UNICEF um allan heim hefði UNICEF aldrei náð þeim mikla árangri sem við höfum orðið vitni að. Á afmælinu erum við því fyrst og fremst þakklát," segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. 

 
UNICEF fagnar 70 ára baráttu í þágu barna heimsins/ UNICEF

         

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum