Finnar til fyrirmyndar
Bandarísk fræðastofnunin um þróunarmál, Center For Global Development, birtir jafnan í ársbyrjun lista yfir ríkustu þjóðir heims og gæðamat á þróunarsamvinnu þeirra.
Á nýjum lista eru Finnar í efsta sæti, sjónarmun á undan Dönum, en næstu þjóðir eru Svíar, Frakkar og Portúgalar.
Listinn tekur til 27 ríkustu þjóðanna. Pólland, Japan og Sviss eru í neðstu sætunum.