Hoppa yfir valmynd
09.02. 2017

Fyrirlestur um Heimsmarkmiðin og kynjajafnrétti

KeickoKeiko Nowacka heldur annan fyrirlestur vormisseris í fyrirlestraröð RIKK og Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna fimmtudaginn 9. febrúar, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands, kl. 12-13.

Fyrirlestur hennar nefnist: Að ná heimsmarkmiðum SÞ um kynjajafnrétti: Starf þróunarsamvinnunefndar Efnahags og framfarastofnunarinnar (OECD) að félagslegum viðmiðum, kynjatölfræði og umbreytandi stefnumótun.  

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem öll aðildarríki eiga að vinna að til ársins 2030 gefa góð fyrirheit um að hægt sé að ná fram jafnrétti kynjanna.

Heimsmarkmiðin eru sautján, með 169 undirmarkmiðum og gilda fyrir öll 193 aðildarríki SÞ Þau marka mikil tímamót þar sem ríki heims hafa ekki fyrr sett sér svo víðtæk, sameiginleg markmið. Fimmta heimsmarkmiðið snýr að því að tryggja jafnrétti kynjanna og valdeflingu allra kvenna og stúlkna, og hafa mælikvarðar verið settir sem taka tillit til þeirra kerfisbundnu hindrana í lífi stúlkna og kvenna sem varða jafnrétti, tækifæri og velferð þeirra. Mikilvægar umbætur má sjá í heimsmarkmiðunum frá þúsaldarmarkmiðunum sem unnið var að fram til 2015 en heimsmarkmiðin fela í sér viðurkenningu á að félagsleg  viðmið og aðstæður séu mikilvægir áhrifavaldar fyrir réttindi og velferð stúlkna og kvenna.

Undirmarkmið heimsmarkmiðs númer fimm er varða ólaunuð umönnunarstörf, skaðlega siði og snemmbær hjónabönd eru dæmi um samþættingu félagslegra viðmiða inn í þróunarrammann. Mælingar og eftirlit með þeim breytingum sem verða á tímabilinu eru lykilatriði til að ná slíkum félagslegum viðmiðum.

Keiko Nowacka hefur frá árinu 2013 starfað fyrir þróunarsamvinnunefnd Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) og stýrir nú því starfi sem snýr að málefnum kynjajafnréttis, þar á meðal  Social Institutions and Gender Index (SIGI) og  Wikigender . Áður en hún hóf störf hjá OECD var hún ábyrg fyrir kynjasamþættingu á menningarsviði Menningarmála-stofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) og ritstýrði einnig fyrstu skýrslunni um kynjajafnrétti og menningu (Global Report on Gender Equality and Culture) sem kom út árið 2014. Hún hefur einnig starfað hjá frjálsum félagasamtökum í sunnanverðri Afríku sem vinna að menntun stúlkna. Nowacka lauk doktorsprófi frá Cambridge-háskóla og er ástralskur ríkisborgari.

Fyrirlesturinn, sem haldinn er á ensku, er öllum opinn.

Hádegisfyrirlestraröð RIKK og Jafnréttisskólans á vormisseri 2017 er haldin  í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum