Hoppa yfir valmynd
15.02. 2017

Landsbankinn verðlaunar framúrskarandi fyrirtæki með sönnum gjöfum UNICEF

Namsgogn_adalÍ lok janúar var listi yfir þau 624 fyrirtæki sem hlutu viðurkenningu Creditinfo fyrir framúrskarandi árangur í rekstri kynntur. Þar sem meira en helmingur fyrirtækjanna eiga í viðskiptasambandi við Landsbankann sendi bankinn öllum fyrirtækjunum hamingjuóskir með góðan árangur og gaf í þeirra nafni  sannar gjafir hjá UNICEF fyrir hvorki meira né minna en þrjár milljónir króna. 

"Við erum innilega þakklát fyrir þetta ótrúlega rausnarlega framlag," segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi í frétt á vef samtakanna. 

"Það er gleðilegt til þess að vita að börn vítt og breitt um heiminn fái nú hjálpargögn sem gefin voru í nafni fjölmargra fyrirtækja á Íslandi. Við þökkum Landsbankanum hjartanlega fyrir og óskum fyrirtækjunum öllum sem fengu viðurkenninguna til hamingju með árangurinn."

Sannar gjafir UNICEF eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir bágstödd börn og er ætlað að bæta líf barna um allan heim. 

Að sögn Völu Karenar Viðarsdóttur, fjáröflunarfulltrúa hjá UNICEF á Íslandi, voru hjálpargögn af öllum stærðum og gerðum í sendingunni frá Íslandi. " Við höfum aldrei fengið jafnstóra pöntun af sönnum gjöfum og erum hæstánægð með þetta," segir Vala. " Gjöfunum verður nú dreift til barna og fjölskyldna þeirra með milligöngu birgðastöðvar UNICEF. Framtakið hjá Landsbankanum er frábært og mun sannarlega koma í afar góðar þarfir."

Nánar

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum