Endurnýja samstarfsyfirlýsingu við Rauða krossinn
Utanríkisráðuneytið og Rauði krossinn á
Íslandi hafa endurnýjað samstarfsyfirlýsingu um reglubundið framlag
utanríkisráðuneytisins við starf Alþjóðaráðs Rauða krossins, svo og um
gagnkvæma upplýsingagjöf og samstarf um mannúðarmál.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Sveinn Kristinsson,
formaður Rauða krossins, undirrituðu yfirlýsinguna í gær í húsakynnum RKÍ.
"Samstarf okkar við Rauða krossinn á
Íslandi hefur reynst afskaplega vel og þessi yfirlýsing rammar ekki
aðeins inn hefðbundin framlög okkar til Alþjóðaráðs Rauða krossins,
heldur kveður einnig á um ákveðið faglegt samtal okkar í milli. Það
leikur enginn vafi á að skoðanaskipti og samstarf við Rauða krossinn
hefur brýnt okkur í málsvörninni á alþjóðavettvangi fyrir virðingu fyrir
mannúðarlögum," segir Guðlaugur Þór.
Samstarfsyfirlýsingin gildir út árið
2019. Hún kveður m.a. á um gerð rammasamnings um framlög stjórnvalda til
alþjóðlegrar mannúðaraðstoðar á vegum Rauða krossins, aðstoðar við
flóttafólk og hælisleitendur.
Nánar á vef utanríkisráðuneytis Samstarfsyfirlýsing við utanríkisráðuneytið undirrituð/ RauðiKrossinn