Hoppa yfir valmynd
02.03. 2017

Loftslagsbreytingar og þverrandi náttúruauðlindir ógna framtíð mannkyns

FAOSkyrsla2Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) telur að framtíð mannkyns sé ógnað vegna þess að náttúruauðlindir fari þverrandi og breytingar á loftslagi skapi þær aðstæður að matvælaskortur gæti orðið að veruleika. Þessi sterka viðvörun er sett fram í nýrri skýrslu FAO -   The Future of Food and Agriculture: Trends and Challenges - þar sem lögð er áhersla á mikilvægi þess að grípa í taumana meðan jarðarbúar hafa enn möguleika á því að framleiða mat fyrir alla. Að mati skýrsluhöfunda þarf að gera gagngerar breytingar til að tryggja sjálfbæra framleiðslu á mat í þágu alls mannkyns.

Í skýrslunni segir að raunverulegar og marktækar framfarir hafi orðið á síðustu þrjátíu árum í baráttunni gegn hungri en þær framfarir hafa oft á tíðum verið á kostnað náttúrunnar. "Um það bil helmingur skóga sem eitt sinn klæddi lönd heimsins er horfinn. Ört er gengið á grunnvatnsbirgðir. Líffræðilegur fjölbreytileiki minnkar," segir í skýrslunni.

Mannfjöldaspár gera ráð fyrir að íbúar jarðarinnar verði 10 milljarðar árið 2050. Í ljósi þess segir FAO að þörfin í heiminum fyrir landbúnaðarafurðir gæti aukist um 50% miðað við framleiðsluna í dag. Það merkir hins vegar aukið álag á náttúruauðlindir sem þegar eru undir álagi.

Í skýrslunni segir ennfremur að þeim komi til með að fjölga sem borða minna kornmeti en meira af kjöti, ávöxtum, grænmeti og unnum matvælum. Þetta sé hluti af breyttu mataræði í heiminum sem auki álag á náttúruauðlindir, leiði til aukinnar skóga- og landeyðingar og aukinnar losunar gróðurhúsalofttegunda.

Að mati FAO er brýnt að fjárfesta í matvælaframleiðslu heimsins og endurskipuleggja hana því að óbreyttu fjölgi þeim sem svelta fram til ársins 2030, en það ár á samkvæmt Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna að vera búið að uppræta hungur í heiminum. 

Skýrsluhöfundar segja hins vegar að 600 milljónir manna verði enn vannærðar árið 2030 verði ekkert aðhafst til að styrkja matvælaframleiðsluna í heiminum.

Nánar

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum