Endurnýjaður samningur við Landsnefnd UNICEF á Íslandi
Utanríkisráðuneytið og Landsnefnd
Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) endurnýjuðu á dögunum
samstarfssamning til næstu þriggja ára. Skrifað var undir samninginn í
heimsókn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra til Miðstöðvar
Sameinuðu þjóðanna að Laugavegi 176 í Reykjavík en þar eru til húsa
Landsnefndir UNICEF og UN Women, auk Félags Sameinuðu þjóðanna.
"Landsnefndirnar hafa verið öflugir og góðir samherjar við upplýsingagjöf á starfi Sameinuðu þjóðanna og því mikilvæga fjáröflunarstarfi sem fram fer innanlands á málasviðum þeirra eins og þorri almennings hefur tekið eftir, nú síðast með árangursríkri herferð UNICEF í þágu barna í austurhluta Nígeríu og Suður-Súdan. Danshátíð UN Women, Milljarður rís, gegn ofbeldi í garð kvenna er öllum líka í fersku minni," segir Guðlaugur Þór.
Utanríkisráðuneytið, Landsnefndirnar tvær og Félag Sameinuðu
þjóðanna gera með sér samstarfssamninga til þriggja ára um
upplýsingagjöf og kynningarmál. Samningurinn sem undirritaður var í dag
milli ráðuneytisins og UNICEF hefur það markmið að skapa grundvöll fyrir
samráð og samvinnu utanríkisráðuneytisins og landsnefndarinnar, stuðla
að umfjöllun um alþjóðamál með hugsjónir og markmið UNICEF að
leiðarljósi, fjalla um þátttöku Íslands hvað varðar málefni barna á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna, efla umfjöllun á Íslandi um málefni barna í
þróunarríkjum og efla þátt Íslands í málefnastarfi UNICEF.
Þríþættur stuðningur utanríkisráðuneytisins
Stuðningur ráðuneytisins við starfsemi
Barnahjálpar SÞ er þríþættur, auk samningsins við Landsnefndina felur
hann bæði í sér almenn og sértæk framlög til samtakanna. Almennu
framlögin hækkuðu á síðasta ári um 16% og nema nú 875 þúsundum
bandarískra dala á ári, eða jafnvirði 96 milljóna króna. Ennfremur er
Ísland stærsti einstaki stuðningsaðili þriggja ára verkefnis í
Sambesíufylki í Mósambík þar sem UNICEF byggir upp vatns-, hreinlætis-
og salernisaðstöðu í sex héruðum sem eru meðal þeirra fátækustu í
landinu. Sá stuðningur nemur á þremur árum 3,5 milljónum Bandaríkjadala
eða tæpum 400 milljónum íslenskra króna.
Mynd: Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Bergsteinn Jónsson framkvæmdastjóri Landsnefndar UNICEF á Íslandi.