Hoppa yfir valmynd
29.03. 2017

Stærsti nemendahópurinn til þessa í Landgræðsluskólanum

Group_long_pic_skorin2Um miðjan mars hóf nýr hópur nám í árlegu 6-mánaða námi í landgræðslu og sjálfbærri landnýtingu við Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna.

Hópurinn í ár er sá stærsti frá upphafi og hafa nemendur aldrei komið frá jafn mörgum löndum en alls telur hópurinn 14 manns frá átta löndum. Að þessu sinni koma nemarnir frá Eþíópíu, Ghana, Lesótó, Malaví, Mongólíu, Níger, Úganda og Úsbekistan. Mestur hluti kennslunnar fer fram í húsakynnum Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti en nemarnir dvelja einnig drjúgan hluta sumarsins í höfuðstöðvum Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti á Rangárvöllum.

Nemar Landgræðsluskólans eru öll starfsmenn samstarfsstofnanna Landgræðsluskólans í sínum heimalöndum þar sem þau vinna að landgræðslu, landvernd og/eða stjórnun og eftirliti landnýtingar. Samstarfsstofnanir Landgræðsluskólans eru einkum ráðuneyti, umhverfisstofnanir og héraðsstjórnir, en einnig háskólar og aðrar rannsóknastofnanir. Náminu líkur með kynningu á rannsóknaverkefnum sem nemarnir vinna að á meðan þau dvelja hér á landi. Útskrift hópsins í ár fer fram um miðjan september. 

Að Landgræðsluskólanum standa Landbúnaðarháskóli Íslands, Landgræðsla ríkisins, Háskóli Sameinuðu þjóðanna og utanríkisráðuneytið, en skólinn er hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.

Frekari upplýsingar eru á vef skólans.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum