Hoppa yfir valmynd
18.04. 2017

Neyðarsöfnun UNICEF fyrir vannærð börn í fjórum löndum

UnicefsofnunBarnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) á Íslandi hóf á mánudag neyðarsöfnun fyrir vannærð börn í Suður-Súdan, Jemen, Nígeríu og Sómalíu. Nærri 1,4 milljónir barna eru í lífshættu í löndunum fjórum og gætu dáið af völdum alvarlegrar vannæringar. Ástandið nú má að miklu leyti rekja til stríðs og átaka en einnig til mikilla þurrka.

Alls ógnar hungursneyð nú lífi allt að 20 milljóna manna.  Ástandið er það versta frá stofnun Sameinuðu þjóðanna fyrir rúmum 70 árum, segir í frétt frá UNICEF, og raunveruleg hætta er á fjórum hungursneyðum í heiminum á sama tíma. Það hefur aldrei gerst áður frá stofnun SÞ.
UNICEF er á vettvangi í öllum fjórum ríkjunum og heldur úti gríðarlega umfangsmiklum neyðaraðgerðum, bæði með hjálp heimsforeldra og þeirra sem styðja neyðarsöfnun UNICEF.

Yngstu börnin berskjölduðust
"Þegar hafa fjölmargir hér á landi stutt við neyðaraðgerðir UNICEF í Suður-Súdan og það veitir okkur von að finna þann mikla stuðning. Þar sem hungursneyð vofir nú yfir í þremur ríkjum til viðbótar höfum við ákveðið að blása til sérstakrar neyðarsöfnunar til að bregðast við þessum fordæmalausu aðstæðum," segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Barn sem þjáist af alvarlegri bráðavannæringu - hættulegasta formi vannæringar - er níu sinnum líklegra til að deyja af völdum sjúkdóma en önnur börn sem veikjast. Þetta geta til dæmis verið malaría, lungnabólga og niðurgangspestir.

Niðurgangspestir og mislingar voru megindánarorsökin í hörmungunum í Sómalíu fyrir sex árum þar sem börn voru helmingur þeirra sem létust. Það sama á við nú og þá að börn deyja ekki einungis vegna skorts á mat. Þau látast einnig vegna þess að þau drekka mengað vatn sem orsakar niðurgangspestir, hafa ekki aðgang að heilsugæslu og missa af lífsnauðsynlegum bólusetningum. Allt gerir þetta þau útsettari en ella fyrir margvíslegum sjúkdómum.

"UNICEF leggur af þessum sökum þunga áherslu á að veita margþátta neyðarhjálp: Bjarga lífi vannærðra barna með því að veita þeim nauðsynlega meðferð, dreifa hreinu vatni, bólusetja börn, tryggja þeim heilsugæslu og sjá til þess að hreinlætismál séu í lagi," segir Bergsteinn.
Hægt er að styðja neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi með því að senda sms-ið BARN í nr. 1900, gefa með kreditkorti hér og leggja inn á reikning 701-26-102050, kt 481203-2950.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum