Hoppa yfir valmynd
26.04. 2017

MOOC námskeið - Landgræðsla til sjálfbærrar þróunar með aðkomu viðskiptalífsins

https://youtu.be/ajv540N59kg Landgræðsluskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna hefur, ásamt samstarfsaðilum, þróað netnámskeið um þau tækifæri sem landgræðsla skapar til að stuðla að sjálfbærri þróun. Námskeiðið nefnist Landscape Restoration for Sustainable Development: a Business Approach.  Það gefur heildstæða þekkingu á landhnignun og landgræðslu bæði út frá sjónarhóli náttúruvísinda annars vegar og viðskipta- og atvinnulífs hins vegar. Í námskeiðinu er útskýrt hvernig landgræðsla bætir landgæði og frjósemi lands sem skilar  sér í fjárhagslegum og samfélagslegum ávinningi og styður þannig við afkomu og velferð einstaklinga og samfélaga. Námskeiðið er sérstaklega sniðið að nemendum og sérfræðingum í viðskiptum og stjórnun en er í boði fyrir alla sem hafa áhuga á að viðhalda og endurheimta landgæði.

Námskeiðið er svokallað MOOC-námskeið (Massive Open Online Course) sem fer alfarið fram á netinu og er opið öllum án endurgjalds. Það er því hægt að ná til mikils fjölda fólks í einu og gefa  breiðum hópi einstaklinga tækifæri til að mennta sig óháð staðsetningu og efnahag. Jafnframt skapar þessi gerð námskeiða sóknarfæri til að vekja athygli á aðkallandi málefnum samtímans.                    

IMG_3168Landeyðing og hnignun landgæða er eitt af þeim málefnum sem takast þarf á við til að tryggja sjálfbæra þróun. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna nr. 15 er tileinkað þessu málefni, en það lýtur að því að stöðva landeyðingu, vernda, endurheimta og stuðla að sjálfbærri nýtingu landvistkerfa. Landeyðing hefur víðtæk neikvæð áhrif á afkomu einstaklinga og samfélaga. Hún dregur úr tækifærum fólks til að lifa af landinu og hefur neikvæð áhrif á heilsu fólks þar sem henni fylgja oft slæm loft- og vatnsgæði og mengun.  Með landgræðslu er hægt að endurheimta gæði landsins, sem til framtíðar getur skapað atvinnu- og viðskiptatækifæri og bætt afkomu og heilsufar fólks. Landgræðsla bindur einnig kolefni í jarðvegi og gróðri og dregur því úr styrk gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu. Það er því margvíslegur ávinningur af því að græða upp land og hindra landhnignun. Mikilvægt er að miðla þessari þekkingu til þeirra sem geta stuðlað að landbótum í sínum störfum. Þess vegna er MOOC-námskeiðið sniðið að nemendum og sérfræðingum í viðskipta- og atvinnulífinu, til að virkja þann kraft sem þar er til sjálfbærrar þróunar. 

MOOC-námskeiðið er þróað í samstarfi ENABLE verkefnisins sem styrkt er af Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins. Auk Landgræðsluskólans eru það Rotterdam School of Management, Commonland, Estoril Conferences og Spanish National Research Council sem standa að ENABLE verkefninu. Við þróun og gerð námskeiðsins átti Landgræðsluskólinn einnig mjög gott samstarf við sérfræðinga Landbúnaðarháskóla Íslands og Landgræðslu ríkisins, sem miðla í námskeiðinu af þekkingu sem þessar stofnanir búa yfir. ENABLE hópurinn mun halda áfram að þróa námsefni bæði fyrir vefumhverfi og hefðbundnari kennslu á komandi misserum.

MOOC-námskeiðið verður aðgengilegt á vef Coursera þann 1. maí.                     

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum