Hoppa yfir valmynd
26.04. 2017

Vonin enn til staðar

PappAndreas Papp, yfirmaður neyðaraðstoðar SOS Barnaþorpanna á heimsvísu, hélt fyrirlestur þann 19. apríl síðastliðinn í Háskóla Íslands sem bar yfirheitið "Is there a hope for a traumatized generation? The war in Syria and how it affects children."

Andreas hefur yfir tveggja áratuga starfsreynslu á sviði neyðaraðstoðar, þar á meðal starfaði hann í tíu ár hjá Læknum án landamæra. Í marsmánuði var hann staddur í Sýrlandi til að skoða aðstæður og fylgjast með neyðaraðgerðum SOS í Aleppo og Damaskus.

Á fyrirlestrinum kom fram að Andreas hafi aldrei séð aðra eins eyðileggingu og í Aleppo. Ekkert rennandi vatn er í austurhluta borgarinnar en SOS Barnaþorpin hafa komið upp vatnstönkum fyrir almenning. Þá eru 14 skólar gjöreyðilagðir í austurhluta borgarinnar sem Andreas segir mjög mikilvægt að endurreisa svo börnin komist aftur í skóla.

Hann sagði vonina þó vera til staðar. Það þyrfti þó að hjálpa sýrlenskum börnum, þá sér í lagi með áfallaaðstoð og menntun.

Nánar á vef SOS

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum