Hoppa yfir valmynd
03.05. 2017

Auglýst eftir verkefnastjóra í Malaví

MalawiauglysingUtanríkisráðuneytið auglýsir eftir verkefnastjóra til starfa í þróunarsamvinnu í Malaví. Starfið felst í stuðningi við héraðsstjórn Mangochi-héraðs í suðurhluta Malaví þar sem íslensk stjórnvöld styrkja verkefni í lýðheilsu-, vatns- og menntamálum, auk stjórnsýslu.

Starfsmaður vinnur undir stjórn forstöðumanns sendiráðsins í Lilongwe og er búsettur þar, en starfið krefst mikillar viðveru í Mangochi sem er 260 km fjarlægð frá Lilongwe. Ráðið verður til tveggja ára með möguleika á framlengingu og er reiknað með að starfsmaðurinn hefji störf eigi síðar en í september nk.

Nánar á Starfatorgi

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum