Hoppa yfir valmynd
03.05. 2017

Stella Samúelsdóttir ný framkvæmdastýra UN Women á Íslandi

SSStella Samúelsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastýra landsnefndar UN Women á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Ingu Dóru Pétursdóttur.

Stella er mannfræðingur en er einnig með menntun á meistarastigi í opinberri stjórnsýslu, alþjóðasamskiptum og hagfræði. Auk þess hefur hún D vottun í verkefnastjórnun. Hún hefur víðtæka starfsreynslu bæði á sviðum þróunarsamvinnu, reksturs og viðskipta. Hún starfaði í fimm ár á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Malaví þar sem hún meðal annars stjórnaði verkefnum er lutu að jafnréttismálum og valdeflingu kvenna, starfaði sem sérfræðingur hjá fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York þar sem hún hafði umsjón með þróunarverkefnum, stofnunum og sjóðum Sameinuðu þjóðanna, jafnréttismálum og umhverfismálum. Þess má geta að hún tók þátt í hinum ýmsu samningaviðræðum fyrir hönd Íslands í allsherjarþingi SÞ, þar á meðal var hún þátttakandi í samningaviðræðum um stofnun UN Women. Hún hefur einnig starfað sem sjálfstæður ráðgjafi í þróunarmálum. 

Síðastliðin þrjú ár hefur hún rekið eigið fyrirtæki í Bandaríkjunum sem flytur út Saltverk sjávarsalt frá Íslandi til Bandaríkjanna og er saltið nú til sölu í Whole Foods Market, á Amazon, hjá smærri sérverslunum og á veitingastöðum. 

Starfsemi landsnefndar UN Women á Íslandi hefur vaxið ört á undanförnum árum. Síðasta ár var engin undantekning og jukust framlög landsnefndarinnar um 41% á milli áranna 2015 og 2016. Stella tekur við góðu búi Ingu Dóru Pétursdóttur sem leitt hefur landsnefndina undanfarin sjö ár og snýr sér nú að öðrum verkefnum í Mósambík. UN Women er eina stofnun Sameinuðu þjóðanna sem vinnur eingöngu í þágu kvenna og jafnréttis um allan heim. Landsnefndir UN Women starfa í fimmtán löndum að því að vekja athygli almennings á þörfum kvenna í fátækum löndum og starfi UN Women, afla fjár til starfsins og hvetja ríkisstjórnir sínar til að taka þátt í því. Landsnefnd UN Women á Íslandi er ein slíkra landsnefnda.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum