Hoppa yfir valmynd
24.05. 2017

UN Women á Íslandi hvetur almenning til að taka þátt í að uppræta barnahjónabönd í Malaví

Malawiborn3"Önnur hver stúlka í Malaví hefur verið gift fyrir 18 ára aldur og ein af hverjum átta hefur verið gift fyrir 15 ára aldur. Algengt er að allt niður í 12 ára gamlar stúlkur eigi barn auk þess sem algengt er að 15 ára gamlar stelpur séu orðnar tveggja barna mæður. Tíðni barnahjónabanda í Malaví er með þeim hærri í heiminum. Auk þess sem mæðradauði táningsstúlkna er gríðarlegt vandamál í Malaví," segir Hanna Eiríksdóttir, starfandi framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. UN Women á Íslandi hvetur almenning til að taka þátt í að uppræta barnahjónabönd í Malaví með því að senda sms-ið KONUR í 1900 (1.000 kr.)

Í frétt frá UN Women segir: "Nú í febrúar 2017 var veigamikið jafnréttisskref stigið til fulls í Malaví þegar lögræðisaldur var hækkaður úr 15 í 18 ár. En árið 2015 var lagabreyting sem kveður á um hækkun giftingaraldurs stelpna og stráka úr 15 í 18 ár samþykkt og fyrir vikið barnabrúðkaup bönnuð. Síðastliðin tvö ár hefur því verið auðvelt að komast framhjá lögunum þar sem lögræðisaldurinn var enn 15 ár."

UN Women ásamt öðrum stofnunum gegndu lykilhlutverki í að tala eindregið fyrir þessu nauðsynlega skrefi. "Lagabreytingin er stór sigur en nú er gríðarlega mikilvægt að veita almenningi, kennurum og foreldrum í Malaví fræðslu og vekja til vitundar um alvarlegar afleiðingar þessa skaðlega siðar og framfylgja lögum," segir Hanna. UN Women veitir 300 héraðshöfðingjum í Malaví fjárhagslega og tæknilega aðstoð við að binda endi á barnahjónabönd. UN Women styrkir bæði héraðs- og þorpshöfðingja til að leiða baráttuna gegn barnahjónaböndum og tryggja að nýlegum lagabreytingum sé framfylgt alls staðar í bæjum og til sveita. Undanfarin sex ár hefur til að mynda einn héraðshöfðinginn látið ógilda 1500 barnahjónabönd.

Rannsóknir sýna að þessi óhugnanlegi siður hefur varanleg og skaðleg áhrif á stöðu og heilsu ungra stúlkna. Oftast hætta þær námi, missa af tækifærinu til að verða sjálfstæðar konur og koma sér út úr fátækt. Samkvæmt Alþjóða heilbrigðisstofnuninni eru barnungar stelpur í hjónabandi líklegri til að verða fyrir heimilisofbeldi, eiga á hættu að fá lífshættulega fylgikvilla á meðgöngu og eignast oft og tíðum barnungar börn. Þessi óhugnanlegi siður viðheldur bæði fátækt og ofbeldi.

"Góðir hlutir gerast hægt en með fræðslu og vitundarvakningu má útrýma þessum skaðlega og óhugnanlega sið en til þess þarf aukið fjármagn", segir Hanna og hvetur almenning til að leggja átakinu lið með því að senda sms-ið KONUR í 1900 og gefa 1000 krónur.
Þeir sem geta ekki sent sms úr símanum sínum geta lagt 1.000 kr. inn á reikning 0101-05-268086 kt. 551090-2489.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum