Hoppa yfir valmynd
31.05. 2017

Erfitt ástand í Suður-Súdan

13.-Baby-suffers-from-severe-acute-malnutrition-in-Chinaksen--2-SOS Barnaþorpin hafa brugðist við versnandi ástandi í Suður-Súdan meðal annars með neyðaraðstoð til fjölskyldna og opnun á barnvænu svæði í höfuðborg landsins, Juba, að því er fram kemur á vef samtakanna.

Þar segir:"Barnvæna svæðið í Juba gefur 120 börnum tækifæri á að leika sér, læra, fá áfallahjálp og hitta önnur börn. Þá eru SOS einnig að aðstoða 140 börn við að ganga í skóla, meðal annars með því að borga skólagjöld. Þá veita samtökin almenna neyðaraðstoð og reka heilsugæslustöðvar fyrir vannærð börn.

"Ástandið í Suður-Súdan er að versna. Matarverð er að hækka og þurrkarnir eru slæmir. Vannæring barna verður sífellt stærra vandamál," segir Alberto Fait, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Suður-Súdan.Neyðarverkefni SOS í landinu hefur nú verið í gangi undanfarið ár og mun halda áfram á meðan þörf er á. Samtökin munu þó einnig bæta við Fjölskyldueflingarverkefni í Juba en 120 barnafjölskyldur fá þar hjálp til sjálfshjálpar. Þá verða settir upp nokkrir vatnsbrunnar sem tryggja yfir tíu þúsund manns hreint drykkjarvatn.

Suður-Súdan hefur átt í miklum erfiðleikum vegna þurrkanna sem hafa herjað á Austur-Afríku. Mataróöryggi er mikið og vannæring verða sífellt stærra vandamál. Talið er að tólf milljónir manna hafi flúið landið vegna ástandsins."

Nánar 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum