Hoppa yfir valmynd
08.06. 2017

Eitt hundrað milljónum króna úthlutað til þriggja borgarasamtaka vegna mannúðarverkefna

UgandagsalUtanríkisráðuneytið hefur úthlutað ríflega 100 milljónum kr. til þriggja íslenskra borgarasamtaka til mannúðaraðstoðar. Ráðuneytið auglýsti í mars eftir styrkumsóknum og var umsóknarfresturinn til 15. apríl.  Alls bárust þrettán styrkumsóknir frá fjórum borgarasamtökum að heildarupphæð ríflega 270 milljónum króna. 

Eftirfarandi sex styrkir voru samþykktir.

  • Hjálparstarf kirkjunnar - Mannúðaraðstoð í Sómalíu vegna þurrka og ófriðar - 15.000.000 kr.
  • Rauði krossinn á Íslandi - Neyðaraðstoð vegna fæðuskorts og vopnaðra átaka í Jemen - 30.000.000 kr.
  • Rauði krossinn á Íslandi - Barátta gegn kynferðislegu ofbeldi í Suður-Súdan - 15.000.000 kr.
  • Rauði krossinn á Íslandi - Barátta gegn kynferðislegu ofbeldi í Sýrlandi - 15.000.000 kr.
  • Rauði krossinn á Íslandi - Neyðaraðstoð vegna fæðuskorts og yfirvofandi hungursneyðar í Sómalíu - 15.000.000 kr.
  • SOS Barnaþorpin á Íslandi - Neyðaraðstoð í Miðafríkulýðveldinu - 12.000.000 kr.

Þá var úthlutað einum styrk til kynningar- og fræðslustarfa. Félagið Sól í Tógó hlaut 500 þúsund kr. styrk vegna kynningar á rokkbúðum og tónlistarmiðstöð kvenna og stúlkna í Tógó.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum