Hoppa yfir valmynd
08.06. 2017

Empwr peysa til styrktar konum á flótta

https://youtu.be/Qjl0QhLchr4 Íslenska barnafatamerkið iglo+indi í samstarfi við landsnefnd UN Women á Íslandi kynna empwr peysuna. Peysan er hönnuð bæði fyrir börn og fullorðna og er þetta í fyrsta sinn sem iglo+indi hanna einnig flík fyrir fullorðna. Prent peysunnar er unnið úr mynstri sprottið frá Kamerún þar sem UN Women starfrækja griðastaði fyrir konur á flótta.

Í frétt frá UN Women segir að aldrei hafi fleiri verið á flótta í heiminum og nú séu um 65 milljónir manna á flótta eða á vergangi þar af helmingur konur. "Þær eru sérstaklega berskjaldaðar fyrir ofbeldi og mansali en oftar en ekki eru atvinnutækifæri kvenna á flótta af skornum skammti," segir í fréttinni.

"UN Women starfrækir griðastaði fyrir konur á flótta víða um heim, þar á meðal í Kamerún, Austur-Kongó, Serbíu, Makedóníu, Jórdaníu og Írak. Þar gefst þeim kostur á að vinna, stunda hagnýtt nám í tungumálum, tölvuvinnslu, klæðskurði og saumaskap, viðskiptaáætlanagerð og bókhaldi. Um leið hljóta þær félagsskap og jafningjastuðning hver af annarri en margar þeirra glíma við félagslega einangrun. Griðastaðirnir eru grundvöllur fjárhagslegrar valdeflingar kvenna þar sem konum býðst einnig að fá smærri lán til eigin reksturs og koma undir sig fótunum til lengri tíma. Á griðastöðunum hljóta konurnar áfallahjálp og sálrænan stuðning auk þess sem þeim er gert kleift að finna kraft, von og gleði á ný," segir á vef UN Women.

Þar kemur fram að ágóði peysunnar renni til styrktar reksturs griðastaða UN Women. "Með þínum stuðningi geta konur á flótta komið undir sig fótunum og fundið öryggi á ný. Empwr peysan fæst í verslunum iglo+indi og á www.igloindi.com, segir í fréttinni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum