Hoppa yfir valmynd
08.06. 2017

Vika rauða nefsins hófst í gær

DnefFjölmörg fyrirtæki hafa ákveðið að setja upp rauða nefið og sprella með starfsfólki í tilefni af viku rauða nefsins sem hefst í dag. Má þar nefna Vodafone, Kviku, Lindex, Icelandair Hotels, Creditinfo og 66° Norður. Sjálfur dagur rauða nefsins hjá UNICEF er næsta föstudag, 9. júní.

Vika rauða nefsins er skemmti- og góðgerðarvika sem haldin er í fyrsta sinn í ár meðal fyrirtækja hér á landi. Hún er innblásin af góðgerðarvikum framhaldsskólanna, þar sem starfsfólk fyrirtækja mun taka ýmsum fyndnum áskorunum og styðja um leið við baráttu UNICEF fyrir réttindum barna. Markmið viku rauða nefsins er að skapa fjör og góðan móral og fá starfsmenn til að  gerast heimsforeldrar UNICEF - mánaðarlega styrktaraðila sem hjálpa börnum um allan heim.

Vika rauða nefsins nær hámarki föstudaginn 9. júní í nokkurra klukkustunda beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV. Grínistar, leikarar, fjölmiðlafólk og tónlistarmenn munu búa til ógleymanlegt kvöld og skora á áhorfendur að hjálpa börnum og gerast heimsforeldrar UNICEF.
Hægt verður að fylgjast með öllu fjörinu á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #rauttnef og #heimsforeldri.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum