Hoppa yfir valmynd
14.06. 2017

Dagur rauða nefsins: Hátt í tvö þúsund nýir Heimsforeldrar

Sigríður Thorlacius í Dakar, höfuðborg Bangladess - áhrifaríkt kvikmyndabrot. Dagur rauða nefsins hjá UNICEF á Íslandi náði hámarki síðastliðið föstudagskvöld í rúmlega þriggja klukkustunda skemmti- og söfnunarþætti í beinni útsendingu á RÚV. Meginmarkmið átaksins var að gleðja landsmenn, fræða þá um baráttu UNICEF í þágu barna um allan heim og bjóða þeim að gerast heimsforeldrar .

Átakið gekk framar öllum vonum, að því er fram kemur á vef UNICEF á Íslandi. Rúmlega 1850 manns gengu til liðs við heimsforeldra UNICEF og mikill fjöldi núverandi heimsforeldra hækkuðu mánaðarlegt framlag sitt. Auk þess söfnuðust um 5,5 milljónir í stökum framlögum frá einstaklingum og fyrirtækjum. Miðað við reynslu fyrri ára má áætla að heildarvirði söfnunarinnar sé um 220 milljónir, segir á vefnum.

Þar segir ennfremur:
"Heimsforeldrar eru hjartað í lífsnauðsynlegu starfi UNICEF um allan heim og eru nú orðnir tæplega 28.000 talsins á Íslandi. UNICEF starfar í yfir 190 löndum og heimsforeldrar eru hlutfallslega hvergi fleiri í heiminum en á Íslandi. Skráningar halda áfram eftir dag rauða nefsins á  https://unicef.is/skraning

"Við gætum ekki verið ánægðari með niðurstöðuna sem er framar okkar björtustu vonum. Við bjóðum alla nýja heimsforeldra UNICEF hjartanlega velkomna og erum þakklát og hrærð yfir því hversu stór hluti þjóðarinnar leggur baráttu UNICEF lið," segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Á vef UNICEF segir að landsmenn hafi brugðist við sláandi umfjöllun um starf UNICEF víða um heim. "Í forgrunni var ferð söngkonunnar Sigríðar Thorlacius til Bangladess þar sem hún kynnti sér aðstæður barna. Þar hitti hún meðal annars götubörn, sem búa við afar hættulegar aðstæður, og börn sem vinna mikla erfiðisvinnu, en varð einnig vitni að því hvernig UNICEF ásamt heimsforeldrum beita sér af alefli á hverjum degi fyrir bættum lífskjörum barna þar í landi," segir í fréttinni.

Nánar

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum