Hoppa yfir valmynd
14.06. 2017

Malavískur rappari á Secret Solstice hátíðinni

https://youtu.be/_8qhbfeaRMY Malavíski hiphop listamaðurinn Tay Grin er einn af fjölmörgum tónlistar-mönnum sem koma fram á sumarsólstöðuhátíðinni Secret Solstice í Reykjavík síðar í vikunni en hátíðin hefst á morgun og stendur yfir helgina. Tay Grin verður á sviðinu kl. 17:00 á laugardag, 17. júní.

TayTay Grin, sem heitir fullu nafni Limbani Kalilani, er vinsælasti tónlistarmaðurinn í Malaví um þessar mundir. Auk tónlistarinnar hefur hann vakið athygli í heimalandi sínu og víðar fyrir að leggja baráttunni fyrir kynjajafnrétti lið og hann er fulltrúi UN Women í HeForShe herferðinni .

Nánar

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum