Hoppa yfir valmynd
21.06. 2017

Ársfundur UNICEF: Hlutfallslega hæsta framlag allra landsnefnda á Íslandi

FramlogUNICEF2017Ársfundur UNICEF á Íslandi var haldinn á mánudag í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands. Þar kom fram að UNICEF á Íslandi safnaði alls rúmlega 630 milljónum króna árið 2016. Líkt og undanfarin ár safnaði íslenska landsnefndin hlutfallslega hæsta framlagi allra landsnefnda. Langstærsti hluti söfnunarfjársins, eða um 80%, kom frá einstaklingum sem láta sig málefni barna varða: Heimsforeldrum UNICEF

Dagskrá fundarins hófst  með því að Guðrún Ögmundsdóttir, formaður stjórnar UNICEF á Íslandi, bauð gesti velkomna.

Þá hélt Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF, tölu og fór yfir starf UNICEF á síðasta ári. Þar kom meðal annars fram að þjónustuver UNICEF var sett á laggirnar snemma á árinu, þar sem þjónustufulltrúar eiga í samskiptum við heimsforeldra og aðra sem láta sig málið varða.
UNICEF út skýrslu í upphafi árs um  efnislegan skort barna á Íslandi, en um hana hefur mikið verið fjallað í opinberri umræðu. Í henni kom fram að um 6,100 börn á aldrinum 1-15 ára líða efnislegan skort hér á landi. Höfundur skýrslunnar er Lovísa Arnardóttir en ritstjóri Sigríður Víðis Jónsdóttir.

Auk þess var tilraunaverkefninu  réttindaskólar komið á laggirnar á árinu með góðum árangri, en verkefnið felst í að þátttökuskólar leggja Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna til grundvallar í öllu sínu starfi. 

Bergsteinn sagði ennfremur frá vel heppnuðum söfnunarátökum ársins 2016. Þar á meðal var herferðin  Segjum stopp þar sem safnað var fyrir börn frá Sýrlandi og átakið  Ekki horfa  fyrir vannærð börn í Nígeríu. Þá gekk sala sannra gjafa fyrir jólin framar öllum vonum, en landsmenn keyptu sannar gjafir að andvirði rúmlega 24 milljóna króna. Það er um 71% vöxtur frá árinu 2015.

Ungmennaráð UNICEF réðst einnig í átak á árinu sem bar nafnið  #30sek þar sem þau vöktu athygli á því að á hálfrar mínútu frest neyðist barn til að leggja á flótta sökum stríðs, fátæktar eða umhverfisáhrifa. 

Nánar 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum