Hoppa yfir valmynd
21.06. 2017

Bjór & bindi á Kex í kvöld

Tay_school_visit2Malavíski rapparinn og HeForShe leiðtoginn Tay Grin kemur fram á styrktartónleikum ungmennaráðs UN Women á Íslandi í kvöld, miðvikudagskvöldið 21. júní, á Kex ásamt tónlistarkonunni Hildi og rapparanum Tiny. Viðburðurinn nýtur stuðnings breska sendiráðsins og ICEIDA, alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands. 

Tónleikagestum verður einnig veitt innsýn í líf stúlkna og kvenna í Malaví og þeim áskorunum sem þær standa frammi fyrir. Hátt brottfall stúlkna úr námi í Malaví má að hluta til rekja til tíðablæðinga og skorts á dömubindum. Malavískar stúlkur hafa takmarkaðan aðgang að dömubindum og öðrum hreinlætisvörum tengdar tíðablæðingum. Algengt er því að stúlkur mæti ekki í skólann og haldi sig heima fyrir  meðan á blæðingum stendur. Stúlkur sem missa mánaðarlega nokkra daga úr skóla eru líklegri til að hætta námi varanlega. Þar sem stúlkurnar hljóta ekki grunnmenntun aukast líkurnar á að þær verði giftar barnungar eldri mönnum og verða þar með berskjaldaðri fyrir ofbeldi, fátækt og mæðradauða. Því yngri sem þær eru giftar því líklegra er að þær eignist börn á barnsaldri en lífshættulegir fylgikvillar fylgja meðgöngu og fæðingum ungra mæðra. Með því að mæta á tónleikana á Kex gefst almenningi kostur á að styðja við kaup á fjölnota dömubindum fyrir malavískar skólastúlkur  og upplifa um leið malavískt eðalrapp frá vinsælasta hip hop listamanni landsins. Ekkert kostar inn á tónleikana en fólki er boðið að styrkja verkefnið um 1000 kr. sem jafngildir einum pakka af bindum fyrir eina stúlku.

Auk þess er aldrei að vita nema að breski sendiherrann á Íslandi og eiginkona hans rífí í hljóðnemann ásamt Tay Grin sem tróð nýverið upp á tónlistarhátíðinni Secret Solstice.

Hvað: Malavískt rapp og bjór til styrktar menntun stúlkna í Malaví

Hvar: Kex

Hvenær: 21. júní kl.19:30 - 22:00. 

Hlökkum til að sjá þig!


Safna fyr­ir fjöl­nota dömu­bind­um/ Mbl.is 
Tay Grin to advocate for girls education internationally/ Malawi24 
Malawi: Tay Grin Meets to Reykjavik Mayor, Rapper Rick Ross - to Raise Awareness of Girls' Education in Malawi/ NyasaTimes 
Tay Grin surprises Rick Ross with a gift in Iceland/ Malawi24 
Malavískt eðalrapp á KEX/ Vísir 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum