Hoppa yfir valmynd
05.07. 2017 Utanríkisráðuneytið

Hæsta framlagið frá Íslandi - óháð höfðatölu!

UnwomenannualSamkvæmt nýútkominni ársskýrslu UN Women 2016, sendir landsnefnd UN Women á Íslandi hæsta fjárframlag til verkefna UN Women allra landsnefnda, óháð höfðatölu.

Landsnefndir UN Women eru fimmtán talsins og starfa víðs vegar um heiminn. Undanfarin tvö ár hefur íslenska landsnefndin sent annað hæsta framlag landsnefnda, á eftir Ástralíu. Í ár trónir hins vegar sú íslenska á toppnum.

"Starfsemi landsnefndarinnar hefur vaxið ört á undanförnum árum. Síðasta ár var engin undantekning og jukust framlög landsnefndarinnar um 41% á milli áranna 2015 og 2016. Um helmingur af heildarframlagi landsnefndarinnar rann til verkefna sem miða að því bæta lífsgæði og öryggi kvenna á flótta. Þá hafa aldrei fleiri styrkt samtökin með mánaðarlegu framlagi og aldrei áður hafa jafn margir karlmenn tilheyrt þeim hópi," segir Hanna Eiríksdóttir, starfandi framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

"Það er því rík meðvitund og velvild landsmanna sem gerir UN Women á Íslandi kleift að senda hæsta framlagið fyrir árið 2016. Þessar gleðifregnir sýna svart á hvítu að almenningi hér á landi er svo sannarlega umhugað um hag og bága stöðu kvenna víða um heim og beita sér fyrir því að bæta stöðu kvenna og jafna hlut kynja, með því að styrkja verkefni UN Women með sínu mánaðarlegu framlagi. Fyrir þennan stuðning erum við starfsfólk og stjórn landsnefndarinnar gríðarlega þakklát," segir Hanna.

Nánar 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum