Hoppa yfir valmynd
05.07. 2017 Utanríkisráðuneytið

Verkefni með Landsvirkjun þar sem áhersla verður lögð á kynjajafnrétti

SeforallÍ Kröflustöð var í síðustu viku haldin vinnustofa á vegum SEforALL (Sustainable Energy for All - Endurnýjanleg orka fyrir alla). Um er að ræða samtök á vegum Sameinuðu þjóðanna sem stofnuð voru í kjölfar loftslagsfundarins í París í desember 2015. Samtökin hafa að markmiði að tryggja aðgengi mannkyns að orku, tvöfalda hlut endurnýjanlegrar orku í orkuvinnslu í heiminum og tvöfalda framfarir í orkunýtingu fyrir árið 2030. Rachel Kyte framkvæmdastjóri SEforALL og fulltrúi aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna sótti vinnustofuna ásamt á fjórða tug fundargesta víðsvegar að úr heiminum.

Samkvæmt frétt Landvirkjunar fóru Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri og Stella Marta Jónsdóttir forstöðumaður verkefnastofu á ráðstefnu samtakanna í New York í síðasta mánuði og þar tók Ragna þátt í pallborðsumræðum. Hún kynnti endurnýjanlega orkuvinnslu Íslendinga, orkuskipti síðustu áratuga og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í orku- og loftslagsmálum. "Niðurstaða ráðstefnunnar var að setja á fót hraðal - verkefni sem ætlað væri að styðja við kynjajafnrétti, samfélagsþátttöku og eflingu kvenna í orkugeiranum í heiminum. Fundurinn, sem Landsvirkjun hýsir í Kröflu í dag og á morgun, er framhald á undirbúningi hraðalsins," segir í fréttinni.

Markmið SEforALL falla vel að þeim áherslum Landsvirkjunar sem kynntar voru á  opnum fundi um samfélagslega ábyrgð í vor, að því er segir í fréttinni. "Fyrirtækið mun leggja áherslu á þrjú Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna; verndun jarðarinnar (loftslagsmál), sjálfbæra orku og jafnrétti kynjanna. Vinna SEforALL í hraðlinum, sem stefnt er á að taka muni formlega til starfa í lok árs, mun m.a. miða að því að auka áherslu á kynjajafnrétti, samfélagsþátttöku og valdeflingu kvenna , auk þess að kortleggja hagsmunaaðila og mynda bandalög í þeim tilgangi að stuðla að kerfisbreytingum.

SEforALL hefur einnig að markmiði að bæta aðgengi almennings í þróunarríkjunum að rafmagni og auka þátttöku kvenna í því að finna endurnýjanlegar orkulausnir. Þá er markmiðið að samhæfa vinnu hagsmunaaðila á sviði orku- og jafnréttismála og tryggja fjármögnun frá opinberum aðilum og einkaaðilum til verkefna sem tengjast endurnýjanlegri orkuvinnslu."

Nánar á vef Landsvirkjunar 
SEforALL hosts first working meeting of People-Centered Accelerator, promoting gender equality, social inclusion and women’s empowerment/ SEforALLVel heppnaður fundur um samfélagsábyrgð og Heimsmarkmið SÞ/ Landsvirkjun

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum