Hoppa yfir valmynd
21.09. 2017 Utanríkisráðuneytið

UNICEF: Mikilvægi úrbóta á útlendingalögum til að tryggja mannréttindi barna

Un0121214UNICEF á Íslandi hvetur Alþingi til að sameinast um breytingar á útlendingalögum fyrir kosningar, til að tryggja réttindi allra barna sem leita hingað eftir alþjóðlegri vernd. "Nauðsynlegt er að ráðast í tafarlausar úrbætur á yfirstandandi þingi og tryggja að þeim ákvæðum laganna er varðar réttindi og hagsmuni barna sé framfylgt með fullnægjandi hætti," segir í yfirlýsingunni.

Þar segir ennfremur: "Eitt af yfirlýstum markmiðum nýrra útlendingalaga (nr. 80/2016), sem unnin voru af þverpólitískri nefnd þingmanna og tóku gildi 1. janúar 2017, var að uppfylla með skýrari hætti mannréttindi barna sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi og samræma löggjöf alþjóðlegum skuldbindingum, m.a. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem lögfestur var hér á landi 2013. Síðustu mánuði hefur hins vegar komið í ljós að talsverðir annmarkar eru á framfylgd laganna og nauðsynlegt er að skýra betur inntak þeirra með tilliti til mannréttinda og hagsmuna barna sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi.

Mál tveggja ungra stúlkna sem synjað hefur verið um vernd og vísa á úr landi hafa hlotið mikla umfjöllun í fjölmiðlum síðustu mánuði. Þó svo að sérstaklega hafi verið rætt opinberlega um mál einstaka barna má ekki gleymast að fleiri börn hér á landi eru í sömu sporum. Tryggja þarf að öll börn njóti mannúðar og mannréttinda.

  • Að mati UNICEF á Íslandi er brýnt að ráðast í eftirfarandi aðgerðir:
  • Gera breytingar á útlendingalögum til að skýra betur réttindi og hagsmuni barna
  • Setja á laggirnar þverpólitíska nefnd til að fylgjast með og bæta framfylgd útlendingalaga
  • Auka stuðning við stofnanir sem koma að framfylgd laganna

Yfirlýsing þessi helst í hendur við alþjóðlegt ákall UNICEF þar sem kallað er eftir aðgerðum til að tryggja öryggi allra barna á flótta og á vergangi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum