Hoppa yfir valmynd
27.09. 2017 Utanríkisráðuneytið

Sendifulltrúi frá Rauða krossinum til aðstoðar eftir Irmu

Solrun_1506520845633Sólrún María Ólafsdóttir sendifulltrúi og starfsmaður Rauða krossins á Íslandi er á leið í Karabíska hafið þar sem hún mun starfa í svokölluðu FACT neyðarteymi (Field Assessment Coordination Team) á vegum Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans sem er nú að störfum á eyjunum sem verst urðu úti vegna fellibyljsins Irmu. 

Frá þessu segir á vef Rauða kross Íslands en þar kemur einnig fram að Sólrún María verði einnig í stuðningi við þær eyjar sem nú búa sig undir komu fellibylsins Maríu. Sólrún María mun sinna svokallaðri PMER stöðu (Planning, Monitoring, Evaluation and Reporting position) og verður starfsstöð hennar í Trinídad & Tóbagó.

Sólrún María er með mannfræði- og stjórnmálafræðimenntun auk mastersgráðu í alþjóðastjórnmálum með áherslu á þróunarsamvinnu. Hún starfaði lengi í Palestínu fyrir UNICEF og í Malaví bæði fyrir Þróunarmálastofnun SÞ og sendiráð Noregs í landinu. Þetta er fyrsta sendifulltrúaferð hennar fyrir hönd Rauða krossins á Íslandi en frá því í janúar 2017 hefur hún sinnt starfi verkefnastjóra á landsskrifstofu Rauða krossins á Íslandi. 

Að sögn Kristínar S. Hjálmtýsdóttur framkvæmdastjóra Rauða krossins verður ferð Sólrúnar að öllum líkindum fimm til sex vikur. "Sólrún er gríðarlega reynslumikil þegar kemur að mati á aðstæðum og skipulagningu hjálparstarfs á vettvangi" segir Kristín. "Rauði krossinn á Íslandi er þess fullviss að starfskraftar hennar verði fullnýttir í þágu þeirra sem standa höllum fæti í kjölfar þessara veðurhamfara."

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum