Hoppa yfir valmynd
11.10. 2017 Utanríkisráðuneytið

Ársfundir Alþjóðabankans og Alþjóðgjaldeyrissjóðsins

FunduralthjodabankansÁrsfundir Alþjóðabankasamsteypunnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fara fram 13. - 15. október í Washington DC, en þá hittist jafnframt sameiginleg Þróunarnefnd stofnananna. 

Á fundunum verða m.a. til umfjöllunar ný Þróunarskýrsla bankans (World Development Report) um ástand í menntamálum - (sem sagt var frá í síðasta Heimsljósi) og skýrsla um hámörkun fjármögnunar til þróunar með aðkomu einkageirans auk umræðna um endurútreikning á atkvæðavægi, hlutafjáraukningu og framtíðarsýn bankans. 

Ulla Tørnæs þróunarmálaráðherra Danmerkur situr í Þróunarnefndinni fyrir hönd kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Hún situr fund nefndarinnar og flytur sameiginlegt ávarp kjördæmisins. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum