Hoppa yfir valmynd
08.11. 2017 Utanríkisráðuneytið

Börn fá orðið á alþjóðadegi barna

Á alþjóðadegi barna, 20. nóvember, munu börn um allan heim fá orðið í fjölmiðlum, stjórnmálum, íþróttum og listum, í þeim tilgangi að tala fyrir menntun, réttindum og öryggi allra barna. Dagurinn, sem haldinn er 20. nóvember ár hvert, er einnig afmælisdagur Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í tilefni dagsins fá fyrstu Réttindaskólar UNICEF á Íslandi viðurkenningu, en það eru Flataskóli og Laugarnesskóli ásamt frístundaheimilunum Dalheimum, Laugaseli og Krakkakoti. Í samstarfi við UNICEF leggja þessir skólar og frístundaheimili Barnasáttmálann til grundvallar í öllu sínu í starfi.

UNICEF á Íslandi hvetur fjölmiðla, skóla, foreldra og ráðamenn til að gefa börnum orðið alla daga, og vill nýta alþjóðadag barna til þess að minna á það. UNICEF á Íslandi vill að 20. nóvember fái börn tækifæri til að tjá skoðanir sínar, og tala fyrir réttindum sínum og annarra barna heima hjá sér, í skólanum og úti í samfélaginu. 

"Nú þegar kosningar eru nýafstaðnar þykir okkur mikilvægt að hlustað sé eftir skoðunum barna" segir Steinunn Jakobsdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi. "Börn eru ekki með kosningarétt, en eru hins vegar sá þjóðfélagshópur sem treystir hvað mest á vilja stjórnvalda til að tryggja menntun þeirra og öryggi."

Börn fá orðið um allan heimÍ aðdraganda 20. nóvember mun UNICEF gefa börnum um allan heim orðið svo þau geti talað fyrir réttindum sínum og annarra barna, því þrátt fyrir miklar framfarir undanfarinna áratuga er staðan í heiminum enn sú að:

  • 385 milljón börn búa við mikla fátækt
  • 264 milljón börn og ungmenni eru utan skóla
  • 5,6 milljón börn undir fimm ára aldri létust á síðasta ári af fyrirbyggjanlegum orsökum

Alþjóðlega munu þekktir leikarar, íþróttafólk og þjóðarleiðtogar taka þátt í deginum. Sem dæmi má nefna að:

David Beckham, góðgerðarsendiherra UNICEF, mun spyrja börn út í skoðanir þeirra á stöðu heimsmála í stuttmynd sem gefin verður út á alþjóðadegi barna.

Börn munu taka yfir verkefni ríkisstjórna, borgarstjóra, íþróttafólks og leikfangafyrirtækja á borð við Lego;Leikkonurnar Dafne Keen (Logan) og Isabela Moner (Transformers: the Last Knight), ásamt Nickelodeon munu stýra samkomu 150 barna í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.

Hér á Íslandi má búast við skemmtilegum uppákomum í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum sem fylgjast má með undir myllumerkinu #börnfáorðið. Ungmennaráð UNICEF á Íslandi er einnig að vinna að myndböndum með nokkrum börnum þar sem þau velta fyrir sér framtíðinni og verður spennandi að fylgjast með. 

UNICEF á Íslandi hlakkar til að fagna alþjóðadegi barna og hvetur alla til að taka þátt!

Kynningarmyndband um alþjóðadag barna má sjá hér#börnfáorðið


Við teljum niður dagana/ UNICEF 
Universal Children's Day 20 November/ UNICEF 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum