Hoppa yfir valmynd
03.08. 2018 Utanríkisráðuneytið

Góður árangur af neyðaraðstoð í Mið-Afríkulýðveldinu

Góður árangur náðist af neyðaraðstoð sem SOS Barnaþorpin á Íslandi og í Svíþjóð fjármögnuðu í Mið-Afríkulýðveldinu frá mars 2017 til mars 2018. Meginmarkmið neyðarastoðarinnar var að hjálpa börnum sem bjuggu við stríðsástand og hörmungar. Yfir 20 prósent landsmanna hafa þurft að flýja heimili sín og um 600 þúsund manns voru á vergangi í eigin landi árið 2017. Samkvæmt skýrslunni héldu 438.724 flóttamenn til í nágrannalöndum.

Þetta er á meðal þess sem fram í lokaskýrslu um aðstoðina og fjallað er um á vef SOS Barnaþorpa í dag. 

Til marks um hræðilegt ástand í landinu má geta þess að til stóð að senda fulltrúa frá SOS Barnaþorpunum á Íslandi á vettvang til að fylgjast með framvindu verkefnisins, en frá því var horfið af öryggisástæðum eftir að bresk stjórnvöld gáfu út aðvörun og vöruðu við ferðum til landsins. Fram kemur í skýrslunni að ástandið í landinu valdi enn áhyggjum því 11 af 16 sýslum eru ennþá undir yfirráðum vopnaðra sveita og mikið ofbeldi þrífst á þessum svæðum.

Megináhersla verkefnisins var vernd barna, menntun þeirra og næring og þykir vel hafa tekist til með að styrkja stöðu þeirra barna sem þóttu helst berskjölduð fyrir lífshættulegu ástandinu í landinu. Alls voru 23 fjölskyldur þjálfaðar til að taka tímabundið að sér fósturbarn sem orðið hafði viðskila við foreldra sína eða misst þá. Þá tókst að sameina 22 börn við foreldra sína á ný. Tveir skólar voru endurbættir, 5.554 börn sóttu barnvæn svæði verkefnisins og 228 börn fengu sálfræðiaðstoð. Ýmsir erfiðleikar komu þó upp og ekki náðist hámarksárangur, en vandamálin eru talin minniháttar.

Á vef SOS Barnaþorpa á Íslandi er utanríkisráðuneytinu þakkað fyrir stuðninginn við verkefnið, en ráðuneytið styrkti það um 11.943.000 kr. SOS Barnaþorpin á Íslandi lögðu til 6.222.114 kr og var framlag Íslands til neyðaraðstoðarinnar því 18.165.114 kr. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
16. Friður og réttlæti
4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum