Hoppa yfir valmynd
05.09. 2018 Utanríkisráðuneytið

Ísland tekur þátt í svæðaverkefni í vesturhluta Afríku

Þátttakendur og leiðbeinendur á námskeiðinu í Síerra Leone. - mynd

Utanríkisráðuneytið og Sjávarútvegsskóli háskóla Sameinuðu þjóðanna héldu ekki alls fyrir löngu námskeið í notkun og greiningu gagna úr skipaeftirlitskerfum fyrir lykilstarfsmenn sjávarútvegsráðuneyta í Síerra Leone, Líberíu og Gana. Námskeiðið er þáttur í svæðasamstarfi í Vestur-Afríku sem utanríkisráðuneytið tekur þátt í og kallast West Africa Regional Fisheries Program (WARFP). Alþjóðabankinn leiðir samstarfið.

Að sögn Péturs Waldorff, sérfræðings í deild svæðasamstarfs og atvinnnulífs á þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisin, var tilgangur námskeiðsins að styrkja samstarfslöndin í vöktun fiskveiðilögsögu sinnar. Hann segir að tæknin sé nátengd hafrétti og mikilvægt tæki í baráttunni gegn ólöglegum veiðum innan lögsögu ríkjanna.

„Námskeiðið, sem haldið var í Sierra Leone, var hið fyrsta sinnar tegundar, en áætlað er að halda framhaldsnámskeið fyrir sama hóp síðar á árinu og aftur á næsta ári til þess að undirbúa hópinn enn betur í vinnslu gagna úr skipaeftirlitskerfum sínum og túlkun á skilvirkan og áhrifaríkan hátt,“ segir Pétur. „Áhersla er til dæmis lögð á að gögn séu tekin saman og sýnd á myndrænan hátt á korti, en þannig má glögglega greina þegar að skip eru að veiðum innan lögsögu landanna. Með þessum hætti verða gögnin einnig læsileg og nothæf fyrir samstarfsaðila og yfirmenn sem ekki eru sérfræðingar í skipaeftirlitskerfunum og nýtast við eftirfylgni mála og ákvarðanatöku.“

Íslensk reynsla og sérfræðiþekking á sviði skipavöktunar kemur við sögu í þessu verkefni en kennarar námskeiðsins voru þeir Einar Hjörleifsson og Julian Burgos hjá Hafrannsóknarstofnun og Alex Senechal hjá Macalister Elliot and Partnes LTD í Bretlandi. Sjávarútvegsskóli háskóla Sameinuðu þjóðanna sá um skipulag og utanumhald námskeiðsins.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum