Hoppa yfir valmynd
09.11. 2018 Utanríkisráðuneytið

Hungursneyð yfirvofandi í Jemen: Ástandið versnar dag frá degi

Ljósmynd: Rauði krossinn. - mynd

„Matarskortur er hvergi jafn mikill í heiminum eins og í Jemen. Þar eru milljónir íbúa á barmi hungursneyðar og ástandið versnar dag frá degi,“ segir í frétt frá Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) en David Beasley framkvæmdastjóri stofnunarinnar sagði í gær að sinnuleysi um hungursneyð væri skömm mannkyns.

Í fréttinni segir að WFP og önnur mannúðarsamtök hafi gert allt sem í þeirra valdi stendur til að afstýra hungursneyð en margt bendi því miður til þess að meira þurfi til því víðtækur sultur blasi við. Beðið er eftir greiningu á ástandinu en bæði fulltrúar frá Sameinuðu þjóðunum og ríkisstjórn Jemen eru að taka saman gögn sem verða væntanlega kynnt á næstu vikum. Óttast er að þá komi í ljós að á sumum átakasvæðum sé nú þegar hungursneyð.

Samkvæmt síðustu skýrslu frá marsmánuði á þessu ári bjuggu 6,8 milljónir í búa Jemen við „neyð“ en talið er að í væntanlegri skýrslu verði íbúafjöldinn kominn upp í 12-14 milljónir. „Það merkir að hartnær helmingur þjóðarinnar hefur svo lítið að borða að það jaðrar við sult,“ segir í frétt WFP en samtökin áforma að tvöfalda matvælaaðstoð við íbúa Jemen gangi þessar spár eftir.

Fulltrúar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) segja að barn deyi á tíu mínútna fresti í Jemen úr sjúkdómum sem auðvelt væri að lækna og að helmingur barna búi við langvarandi vannæringu. „Staða barna í Jemen er skelfileg og Jemen er í dag talinn einn versti staður á jörðinni til að vera barn. Margra ára átök hafa lagt landið í rúst. Á tíu mínútna fresti deyr barn í Jemen af orsökum sem hægt væri að fyrirbyggja. Meira en 11 milljónir barna í Jemen þurfa á lífsnauðsynlegri hjálp að halda. Það er nánast hvert einasta barn í landinu!,“ segja fulltrúar UNICEF á Íslandi en samtökin eru með neyðarsöfnun í gangi fyrir börn í Jemen.

Rauði krossinn á Íslandi hóf um síðustu helgi neyðarsöfnun vegna vopnaðra átaka og yfirvofandi hungursneyðar í Jemen. „Íslensk stjórnvöld hafa verið í forystuhlutverki að benda á þá neyð sem vopnuð átök í Jemen  valda almenningi þar í landi, sér í lagi börnum, eldra fólki og þeim sem þurfa á heilbrigðisaðstoð að halda,“ sagði Sveinn Kristinsson formaður Rauða krossins þegar neyðarsöfnunin hófst.

Íslensk stjórnvöld vörðu á síðasta ári rúmum hálfum milljarði króna til mannúðaraðstoðar í heiminum gegnum alþjóðasamtök, að stórum hluta framlög til WFP, auk þess sem íslensk félagasamtök ráðstöfuðu 300 milljónum frá utanríkisráðuneytinu til mannúðaraðstoðar.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum