Hoppa yfir valmynd
22.01. 2019 Utanríkisráðuneytið

Þörf á vetrarfatnaði í flóttamannabúðum í Líbanon

Vetrarfötum dreift til flóttafólks í Líbanon. - myndSOS
Starfsfólk SOS Barnaþorpa dreifðu í síðustu viku hlýjum vetrarfatnaði til sýrlenskra flóttafjölskyldna í Bekaa-dalnum í Líbanon, en tíðarfar hefur verið óvenju slæmt á svæðinu undanfarnar vikur. Salman Dirani, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpsins í Ksarnaba í Líbanon segir mikla þörf á hlýjum skóm, yfirhöfnum, sokkum og öðrum vetrarfatnaði fyrir börn að 14 ára aldri. „Vetrarfatnaður er mjög sjaldgæfur hérna og það er lítið um að önnur hjálparsamtök dreifi slíkum fatnaði. Við áttum til hlý föt sem safnast höfðu fyrir framlög styrktaraðila og við náðum því að skaffa fólkinu fötin,“ er haft eftir Salman á vefsíðu SOS Barnaþorpa á Íslandi

SOS Barnaþorpin í Líbanon settu í mars árið 2017 á laggirnar neyðarverkefni í Bekaa-dalnum sem felur í sér að styðja fjölskyldur í erfiðum aðstæðum, alls 330 fjölskyldur. Nærri ein milljón Sýrlendinga hafa sótt um hæli í Líbanon frá því borgarastyrjöldin í Sýrlandi hófst árið 2011. SOS Barnaþorpin á Íslandi taka reglulega þátt í að leggja fjármagn til neyðarverkefna af þessu tagi. 

Samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna urðu að minnsta kosti 11 þúsund flóttamenn fyrir barðinu á slagviðrinu sem geysaði um Líbanon í byrjun mánaðar og vatn hefur flætt um meira en 15 flóttamannabúðir, sem hefur orðið til þess að um 600 flóttamanna hafa þurft að yfirgefa búðirnar í Bekaa-dalnum og koma sér fyrir á nýjum stað. 
 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum