Hoppa yfir valmynd
15.04. 2019 Utanríkisráðuneytið

Rauði krossinn: Neyðarsöfnun vegna ofsaflóða í sunnanverðri Afríku enn í gangi

Móðir með barn. Ljósmynd: Rauði krossinn. - mynd

Alvarlegt ástand ríkir enn í sunnanverði Afríku eftir að fellibylurinn Idai skall á svæðið fyrir rúmum fjórum vikum. Flóðin sem fylgdu fellibylnum ollu gríðarlegum skaða í Mósambík, Malaví og Simbabwe en af þessum þremur ríkjum er ástandið hvað verst í Mósambik og þar breiðist smitsjúkdómurinn kólera hratt út. 

Í frétt frá Rauða krossinum segir að í heildina hafi fellibylurinn haft áhrif á rúmlega þrjár milljónir manna í þessum heimshluta og um 250 þúsund manns hafi misst heimili sín. „Tugir þúsunda heimila hafa jafnast við jörðu.  Þar af auki eyðilagði fellibylurinn þúsundir akra af uppskeru sem mun hafa veruleg áhrif á mataröryggi á svæðinu.  Þá eru stór svæði og borgir án rafmagns og fjarskipti liggja niðri. Ástandið er talið eitt það versta á svæðinu í áratugi, en að minnsta kosti 960 manns eru taldir af. Í Mósambík er tala látinna komin yfir 600 og rúmlega 4 þúsund kólerusmit hafa þar verið greind,“ segir í fréttinni.

Þar segir ennfremur:

„Viðamiklar aðgerðir á vegum Rauða krossins eru nú í gangi og sjálfboðaliðar og starfsfólk vinna hörðum höndum við að hjálpa fólki á svæðinu. Allt kapp er lagt á að bæta aðgengi hreinlætisaðstöðu og hreinu vatni til að hefta útbreiðslu smitsjúkdóma. Rauði krossinn veitir læknis- og mataraðstoð, húsaskjöl ásamt því að aðstoða fólk að finna týnda fjölskyldumeðlimi. Róbert Þorsteinsson, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, er á svæðinu og hefur umsjón með fjármálum neyðaraðgerðanna í Malaví. Þar af auki vill svo til að sendifulltrúarnir Halldór Gíslason og Bjarni Sigurðsson, starfsmenn Íslandsbanka sem lánaðir voru Rauða krossinum til að styðja við uppbyggingu malavíska landsfélagsins á sviði upplýsingatækni voru nýlega í Malaví ásamt Guðnýju Nielsen, verkefnastjóra Rauða krossins sem sinnir langtímaþróunarsamstarfi í þremur héruðum í sunnanverðu landinu.

Á undanförnum árum og áratugum hefur Rauði krossinn á Íslandi starfað náið með systurfélögum sínum á þessu svæðum bæði í Malaví og Mósambík. Náin tengsl hafa myndast á þessum tíma milli okkar og þessara landsfélaga og segja má að málið standi okkur nærri.

Rauði krossinn á Íslandi er afar þakklátur fyrir allan þann stuðning sem borist hefur frá almenningi. Fjölmargir hafa lagt söfnuninni lið og barst neyðarsöfnuninni meðal annars 500.000 kr. styrkur frá einstaklingi. Deildir Rauða krossins á Íslandi hafa einnig lagt söfnuninni lið með rúmlega 4 milljóna króna framlögum.“

Söfnun Rauða krossins til hjálpar fórnarlömbum fellibylsins í sunnanverðri Afríku er í fullum gangi. Hægt er að styðja starfið með 2900 kr. framlagi með því að senda SMS skilaboðin HJALP í númerið 1900. Einnig má leggja inn á reikning 0342 - 26 - 12, kt. 530269-2649.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum