Hoppa yfir valmynd
27.06. 2019 Utanríkisráðuneytið

Samningur Íslands og FAO ræddur á ársfundi stofnunarinnar

Qu Dongyu nýr framkvæmdastjóri FAO. Ljósmynd: FAO/ Alessia Pierdominco - mynd

Nýgerður samningur milli Íslands og Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) kom til umræðu á ársfundi stofnunarinnar í vikunni. Stefán Jón Hafstein fastafulltrúi Íslands hjá FAO tók til máls á fundinum undir umræðum um fiskveiðimál og gerði þinginu grein frá samningnum sem snýr að áformum í baráttunni gegn ólöglegum og stjórnlausum fiskveiðum og rusli í hafi.

Þá minnti hann á að á næsta ári verður fagnað 25 ára afmæli sáttmála um stjórn fiskveiða, Code of Conduct, en ætlunin er að aðildarþjóðirnar sameinist um nýja og stefnumarkandi yfirlýsingu. Stefán Jón hvatti ríkin til að taka fullan þátt í gerð þeirrar yfirlýsingar, en hún verður meðal annars á borði framkvæmdaráðs fiskveiðinefndarinnar þar sem Ísland situr fyrir hönd Evrópuríkja.

Á ársfundinum í Róm var Qu Dongyu frá Kína var kjörinn nýr framkvæmdastjóri FAO eftir spennandi kosningabaráttu. Hann fékk yfirgnæfandi meirihluta atkvæða í fyrstu umferð, 108, gegn 71 atkvæði Catherine Geslain-Lanéelle, franska frambjóðandans, sem borinn var fram af Evrópusambandinu og 12 atkvæðum Davit Kirvalidze, Georgíumanns, sem Bandaríkin studdu opinberlega.

Qu Dongyu tekur við starfinu af Jose Graziano da Silva frá Brasilíu.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi
14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum