Hoppa yfir valmynd
28.08. 2020 Utanríkisráðuneytið

Stuðningur við skólastúlkur á blæðingum dregur úr brottfalli

Ljósmynd frá skóla í Buikwe: gunnisal - mynd

Íslendingar hafa um árabil stutt við bakið á stelpum í skólum í samstarfshéraðinu Buikwe í Úganda, í samstarfi við frjálsu félagasamtökin WoMena, sem vinna að bættri kyn- og frjósemisheilsu kvenna, sérstaklega í tengslum við blæðingar. Samstarfið hefur leitt til þess að dregið hefur verulega úr brottfalli unglingsstúlkna úr skólum í héraðinu en skortur á tíðavörum og þekkingarleysi um blæðingar leiddi áður til þess að margar stúlkur hættu námi. Stuðningurinn nær til 1200 stúlkna í 21 skóla.

Samningurinn við WoMena var endurnýjaður til eins árs á dögunum í sendiráði Íslands í Kampala. „Ísland leggur mikla áherslu á fimmta heimsmarkmiðið um jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna og stúlkna. Samstarfið við WoMena fellur ákaflega vel að því alþjóðlegum markmiðum um að tryggja öllum konum heilbrigðisþjónustu á sviði kynheilbrigðis og frjósemisheilsu,“ sagði Finnbogi Rútur Arnarson starfandi forstöðumaður sendiráðsins við undirritun samningsins.

Thao Ngoc Do framkvæmdastjóri WoMena skrifaði undir samninginn fyrir hönd samtakanna og kvaðst hlakka til samstarfsins við Íslendinga og héraðsstjórn Buikwe um þennan mikilvæga málaflokk.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
3. Heilsa og vellíðan
4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum