Hoppa yfir valmynd
01.10. 2020 Utanríkisráðuneytið

Fjölgun nauðungarhjónabanda og ótímabærra þungana vegna COVID

Ljósmynd: Tom Merilion/ Save the Children - mynd

Samkvæmt nýrri skýrslu Barnaheilla – Save the Children er óttast að nauðungarhjónaböndum fjölgi umtalsvert vegna COVID-19 farsóttarinnar. Í greiningu samtakanna er reiknað með að hálf milljón ungra stúlkna verði hnepptar í hjónaband á þessu ári til viðbótar við þær tólf milljónir stúlkna sem að jafnaði eru þröngvað í hjónaband á barnsaldri árlega.

Einnig er óttast að þungunum barnungra stúlkna fjölgi á árinu vegna faraldursins. Í skýrslunni er sagt að allt að ein milljón stúlkna kunni að verða barnshafandi á þessu ári, umfram það sem áður hafði verið reiknað með. Minnt er á að barnsfæðing er helsta dánarorsök stúlkna á aldrinum 15 til 19 ára.

Stúlkur í Suður-Asíu eru í mestri áhættu og talið að í hóp giftra stúlkna bætist 200 þúsund stúlkur við fyrir áramót. Að mati samtakanna fjölgar nauðungarhjónaböndum einnig verulega í Vestur- og Mið-Afríku og rómönsku Ameríku að Karíbaeyjum meðtöldum. Ótímabærar þunganir verða hins vegar flestar í Austur-Afríku og Afríku sunnan Sahara.

Í skýrslunni er vakin athygli á þeirri staðreynd að síðasta aldarfjórðung hafi smám saman dregið úr nauðungarhjónaböndum en með COVID-19 heimsfaraldrinum verði beinlínis afturför á þessu sviði eins og svo mörgum öðrum.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum