Hoppa yfir valmynd
25.11. 2020 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðuneytið vekur athygli á átaki gegn kynbundnu ofbeldi

Utanríkisráðuneytið verður baðað roðagylltri birtu næstu sextán daga til að vekja athygli á alþjóðlegu átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Sömuleiðis hafa sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og París verið lýst upp í roðagylltum lit, en þetta er gert í kjölfar áskorunar frá Soroptimistasambandi Íslands.

Átakið hefst í dag, á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gagnvart konum og mun ljúka þann 10. desember, sem er alþjóðlegi mannréttindadagurinn.

Markmið átaksins er að knýja á um afnám á kynbundnu ofbeldi og hvetja til opinnar umræðu og vitundarvakningar meðal almennings sem getur leitt til frekari aðgerða. Í ár er lögð áhersla á að bregðast þurfi við auknu ofbeldi gagnvart konum í kjölfar heimsfaraldursins. 

Heimsfaraldurinn ýtir undir ýmsa áhættuþætti sem auka hættuna á ofbeldi gagnvart konum, svo sem matarskort, atvinnuleysi, efnahagslegt óöryggi og félagslega einangrun. Því hefur aldrei verið mikilvægara en nú að beina sjónum að þessu alvarlega vandamáli sem UN Women hafa fjallað um sem skuggafaraldurinn.

Ísland leggur sitt af mörkum í þessari baráttu og hefur lagt mikla áherslu á jafnréttismál í viðbragðsáætlunum vegna COVID-19 í þróunarsamvinnu í samstarfi við hin Norðurlöndin. Ísland er jafnframt meðal forysturíkja sem leiða aðgerðabandalag um upprætingu á kynbundnu ofbeldi í tengslum við verkefni UN Women Kynslóð jafnréttis (e. Generation Equality Forum), en aðgerðabandalaginu er ætlað að þróa tillögur að áhrifamiklum og umbreytandi aðgerðum sem hafa það að markmiði að uppræta kynbundið ofbeldi.

Utanríkisráðuneytið vill jafnframt vekja athygli á rafrænni málstofu um konur, frið og öryggi, sem haldin er á morgun af tengslaneti norrænna kvenna í sáttarmiðlun á Íslandi, í samstarfi við Jafnréttisskóla GRÓ (GEST) og utanríkisráðuneytið. 
 
  • Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn - mynd
  • Frá sendiráði Íslands í París. - mynd

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum