Hoppa yfir valmynd
27.11. 2020 Utanríkisráðuneytið

UNICEF: 50% hærra verð á bóluefnum á Svörtum föstudegi

Ljósmynd: UNICEF - mynd

„Á meðan við bíðum með eftirvæntingu eftir bóluefni gegn kórónaveirunni þá vantar börn víða um heim vörn gegn ýmsum smitsjúkdómum sem við höfum útrýmt hér á Íslandi eða teljum sjálfsagt að við fáum bóluefni við. Á Svörtum föstudegi ákváðum við því að hækka verðið á bólusetningapakkanum okkar um 50% til þess að tvöfalda hjálp okkar við börn í neyð sem eiga rétt á bólusetningum gegn lífshættulegum sjúkdómum. Það hlýtur að vera tilboð ársins!“ segir Steinunn Jakobsdóttir, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi.

Í dag, á Svörtum föstdegi, hækkar UNICEF verð á bólusetningapakkanum á sannargjafir.is og tilboðið gildir einungis í dag!

UNICEF hefur í áratugi verið leiðandi í bólusetningum fyrir börn og er stærsti einstaki kaupandi bóluefna í heiminum. Á hverju ári bólusetja samtökin og samstarfsaðilar hátt í helming allra barna í heiminum gegn lífshættulegum sjúkdómum á borð við mislinga, mænusótt, rauða hunda og stífkrampa.

Í bólusetningapakkanum er að finna 50 skammta af bóluefni gegn mænusótt, 50 skammta af bóluefni gegn mislingum, 40 skammta af bóluefni gegn stífkrampa og kælibox til að geyma bóluefnin í. Upphæðin sem er borguð aukalega á Svörtum föstudegi nýtist til að kaupa enn fleiri hjálpargögn fyrir börn í neyð.

Sannar gjafir eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir börn í neyð um allan heim. Í vefverslun UNICEF á Íslandi – sannargjafir.is – er að finna mikið úrval gjafa sem eru tilvaldar í jólapakkann, meðal annars jarðhnetumauk fyrir vannærð börn, moskítónet, hlífðarpakka fyrir heilbrigðisstarfsfólk, námsgögn, handsápur og hlý vetrarföt svo nokkuð sé nefnt.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum