Hoppa yfir valmynd
01.12. 2020 Utanríkisráðuneytið

Framlag Íslands skiptir sköpum í fiskisamfélögum

Hluti hópsins sem kynnti sér verkefnin í Buikwe héraði. - mynd

„Ráðherrann var uppnuminn af öllu því sem hann sá, hann ræddi við skólastjóra og kennara, en einnig við þorpsbúa. Allir voru á eitt sáttir um að framlag Íslands skipti sköpum fyrir þau fiskisamfélög þar sem Ísland starfar,“ segir Finnbogi Rútur Arnarson starfandi forstöðumaður sendiráðs Íslands í Kampala eftir heimsókn Raphaels Magyezi, ráðherra sveitarstjórnarmála, til Buikwe, samstarfshéraðs Íslands, í lok síðustu viku.

Um var að ræða tveggja daga skipulagaða ferð um verkefnasvæði Íslands í Buikwe í samfélögum við Viktoríuvatn. Í för með ráðherranum voru auk fulltrúa ráðuneytisins, sýslumaður héraðsins, héraðsstjóri og tvær blaðakonur frá stærstu dagblöðunum. Þrír fulltrúar íslenska sendiráðsins í Kampala sögðu frá samstarfsverkefnunum með héraðsstjórninni.

„Fulltrúar héraðsins töluðu um það grettistak sem unnið hefur verið í menntamálum, en einnig var hrósað aðkomu okkar að vatns,- salernis- og hreinlætismálum og hampað þeirri staðreynd að í þeim þorpum þar sem Ísland hefði lagt vatnsveitu, hafi landlægir sjúkdómar á borð við kóleru, tauguveiki og ormasýkingar, algerlega horfið,“ segir Finnbogi Rútur sem sjálfur kvaðst hafa minnt á helstu áherslur Íslands í þróunarmálum, mannréttindi, jafnrétti, valdeflingu kvenna, báráttuna gegn fátækt og fyrir mannsæmandi lífi, með menntun í öndvegi.

„Ég minnti einnig á þá staðreynd að þegar þróunarvinna hófst í Kalangala héraði út í eyjasamfélögunum á Viktoríuvatni hafi héraðið skrapað botninn í öllum könnunum um menntamál, en þegar samstarfinu lauk, fyrir um mánuði, var héraðið í einu af tuttugu toppsætunum á landsvísu.“ Einnig nefndi Finnbogi Rútur samstarf við nýtt hérað, Namayingo, verkefni tengd fiskimarkaði og vatnsveitu í Pakwach og samstarfi sendiráðsins við UNICEF í flóttamannasamfélögum við landamærin að Suður-Súdan.

„Ráðherrann lýsti yfir áhuga á að heimsækja líka Kalangala, þótt starfi okkar sé þar formlega lokið, og jafnvel Namayingo, þegar það verkefni kemst á skrið.“

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll
6. Hreint vatn og hreint
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum