Hoppa yfir valmynd
06.04. 2021 Utanríkisráðuneytið

Ný stuttmynd frá Flóttamannastofnun um gildi íþrótta fyrir flóttafólk

Í dag, á alþjóðlegum degi íþrótta í þágu framfara og friðar (International Day of Sport for Development and Peace) frumsýnir Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna nýja stuttmynd. Hún sýnir á áhrifamikinn hátt sögu ungrar flóttakonu frá því hún neyðist til að flýja stríðsátök þar til hún er valin til þátttöku á Ólympíuleikjum.

Stuttmyndin nefndist „Ferðalagið“ (The Journey). Það er skálduð saga ungrar konu sem neyðin hrekur á brott úr eigin landi vegna átaka og ofbeldis. Í miðri skothríð hleypur hún særð um rykuga vegi á sandölum og síðan taka við hættulegar ferðir á sjó og landi þar til hún endurheimtir öryggi sem flóttakona í ókunnu landi. Loks finnur hún tilgang í lífinu gegnum íþróttir og er valin til þátttöku á Ólympíuleikum.

Rose Nathike Lokonyen, flóttakona frá Suður-Súdan, bar fána fyrsta ólympíuliðs flóttafólks á Ólympíuleikunum í Rio de Janeiro árið 2016. Hún var ráðgjafi við gerð stuttmyndarinnar en sjálf flúði hún blóðugar ættbálkaerjur í heimalandinu þegar hún var átta ári að aldri. Hún fann að lokum öryggi í Kakuma-flóttamannabúðunum í Kenía þar sem hún eignaðist vini gegnum fótbolta. Hún keppti í 800 metra hlaupi á leikunum í Brasilíu.

Rose starfar nú fyrir Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna með börnum í grennd við Næróbí, höfuðborg Kenía, þar sem hún þjálfar börn á flótta í ýmsum íþróttum en sjálf væntir hún þess að komast á Ólympíuleikana í Tókíó í sumar.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum