Hoppa yfir valmynd
21.07. 2021 Utanríkisráðuneytið

Sárafátækum fjölgar í fyrsta skipti í áratug

Þeim sem búa við sárafátækt fjölgaði um 119-124 milljón manns á síðasta ári, en þetta er í fyrsta skipti í áratug sem sárafátækum fjölgar í heiminum. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu um stöðu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem gefin var út í tengslum við árlegan ráðherrafund um stöðu markmiðanna fyrr í mánuðinum.  

„Heimurinn hefði verið betur í stakk búinn til að takast á við þessa kreppu, með sterkari heilbrigðiskerfi, aukna félagslega vernd, aukinn sveigjanleika sem verður til með jafnari samfélögum og heilbrigðari náttúru, ef heimsmarkmiðin hefðu verið sett í forgang fyrir sex árum. Því miður vorum við á rangri leið áður en COVID-19 skall á,“ segir António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í formála. 

Í skýrslunni er með myndrænum hætti farið yfir stöðu hvers heimsmarkmiðs, en ljóst er að enn vantar töluvert upp á svo að þeim verði náð fyrir árið 2030. Þá hefur heimsfaraldur kórónaveiru dregið verulega úr þeim framförum sem orðið höfðu á síðustu árum og áratugum. Þannig er áætlað að þeim sem lifa við hungursneyð hafi fjölgað um 70-161 milljón manns, líflíkur hafa minnkað, áratuga framfarir á sviði menntunar hafa glatast og ofbeldi gegn konum hefur aukist. Ójöfnuður jókst á síðasta ári og um 255 milljón störf glötuðust vegna afleiðinga faraldursins, sem eru fjórfalt fleiri en glötuðust í efnahagskreppunni 2007-2009. Þá erum við verulega langt frá því að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins vegna loftslagsbreytinga.

Þrátt fyrir að áskoranirnar séu miklar þá segir Guterres ástæðu til bjartsýnis. COVID-19 kreppan hafi sýnt fram á viðnámsþrótt samfélaga sem hafi endurspeglast í þrekvirki framlínustarfsfólks, stafrænum umskiptum og fordæmalausu samstarfi við þróun bóluefna. „Bjartari framtíð er möguleg. Við verðum að nota þessa erfiðleikatíma til þess að umbreyta heimi okkar, standa skil á heimsmarkmiðunum og efna loforð okkar við núverandi og komandi kynslóðir,“ segir hann.

Hér má lesa skýrsluna í heild sinni.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum